26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Í þessum fyrsta þætti ársins eru Ari Eldjárn, Ólafur Stefánsson og söngkonan Ásdís gestir í sófa.
Ásdís er einnig með tónlistaratriði kvöldsins og tekur lagið Release með aðstoð dragdrottningarinnar Faye Knús.
Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar hjátrú okkar Íslendinga.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.