26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Í sófanum að þessu sinni eru þau Jón Ólafsson, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir og Anita Briem.
Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar kvef og pestir.
Hljómsveitin Bjartar sveiflur flytur lögin Út á lífið og Í Reykjavíkurborg.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.