Árið með Gísla Marteini
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins voru Helgi Seljan, Valgerður Matthíasdóttir (Vala Matt) og Björn Hlynur Haraldsson.
Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir tók stöðuna á einkanúmerum ökutækja.
Hljómsveitin Draumfarir ásamt Kristínu Sesselju lokuðu þættinum með laginu Með þér.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.