Árið með Gísla Marteini
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins voru þau Rán Flygenring, Gísli Örn Garðarson og Jón gnarr. Willum Þór Þórsson leit við í upphafi þáttarins.
Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival sýndi frá hundasýningunni Winter wonderland.
Tvíhöfði flutti lagið Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin og Valdimar flutti lagið Gleði og friðarjól.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.