Vikan með Gísla Marteini

05.02.2021

Gestir þáttarins þessu sinni voru þau Matthías Tryggvi Haraldson sviðslistamaður og meðlimur hljómsveitarinnar Hatari, Sóley Tómasdóttir fyrrum borgarfulltrúi og Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur.

Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir fjallaði um gönguskíðaæðið sem tröllríður landanum um þessar mundir.

Tónlist kvöldsins var ekki af lakari endanum en Bubbi, Bríet og GDRN fluttu lagið Ástrós ásamt hljómsveit Guðmundar Óskars og kammerkór Aurora.

Birt

5. mars 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Vikan með Gísla Marteini

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.

Þættir

,