Bárður er að kveikja á kertum á kransinum þeirra og Birta kemur hlaupandi alveg svakalega spennt því þau í þann mund að leggja af stað til Súper. Bárður hefst handa við að raða öllu dótinu sem þau ætla að taka með inn í hylkið sem þau ferðast með og á meðan klæðir Birta sig í jólakjólinn. Þau lenda í smá basli með að koma öllu inn og svo virðist sem þau þurfi að skilja jólatréð eftir. Þegar þau okma loksins til Súper er enginn til þess að taka á móti þeim. Sæjón kemur hlaupandi að þeim og er mjög æstur og er mikið niður fyrir. Hann þarf að tilkynna Bárði að mamma hans sé veik. Sæjón fer með Bárð og Birtu til konungshallarinnar til að hitta pabba Bárðar. Þar fá þau að vita að það er hinn vondi Krúli stendur á bak við þessi veikindi.
Fram koma í Jólastundinni: Gunnar Eyjólfsson, Jón Gnarr, Friðrik Friðriksson, Rúnar Ingi Einarsson, Guðni Már Harðarson, Ólafur Jóhann Borgþórsson, Hljómsveitin Buff, Stúlknakór Reykjavíkur og Skólakór Kópavogsskóla.
Stundin okkar 2003.12.25 : Jólastundin
Dagskrárliðurinn er textaður.
Birt
30. mars 2019
Aðgengilegt til
25. ágúst 2027
Stundin okkar
Umsjón: Jóhann G. Jóhannson og Þóra Sigurðardóttir
Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Hlíf Ingibjörnsdóttir