Bárður kemur alveg öskureiður inn og byrjar að skamma Birtu sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Hún krefur hann útskýringa. Hann sýnir henni tómar ostumbúðir og heldur því fram að hún hafi klárað ostinn sem að hann átti sjálfur. Birta er alveg miður sín yfir því að Bárður sé að saka hana um að hafa klárað ostinn hans. Hann stendur fastur á því að hún sé sökudólgurinn og vill að hún biðjist afsökunar en það ætlar hún ekki að gera því að hún kláraði ekki ostinn. Hún kemur með þá tillögu að þau skoði þetta mál nánar og reyni að finna út hver sökudólgurinn sé. Bárði líst vel á þá hugmynd.
Stundin okkar 2003.11.09 : 6. Þáttur
Dagskrárliðurinn er textaður.
Birt
30. mars 2019
Aðgengilegt til
24. ágúst 2027
Stundin okkar
Umsjón: Jóhann G. Jóhannson og Þóra Sigurðardóttir
Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson og Hlíf Ingibjörnsdóttir