Við kíkjum í heimsókn á Hellu og hittum þar fjóra hressa krakka sem segja okkur margt skrítið og skemmtilegt um bæinn sinn og furðuverur sem búa í Rangá. Þau hafa áhuga á tungumálum og þau kunna svo sannarlega að segja brandara.
Krakkastígskrakkar:
Ómar Azfar Valgerðarson Chattha
Unnur Edda Melsted
Alma Sóley Kristinsdóttir
Bragi Valur Magnússon
Í Kveikt á perunni búa krakkarnir til grímu - hermikrákan og hljóðkúturinn verða á sínum stað og að sjálfsögðu slímið góða.
Skaparar og keppendur:
Gula liðið:
Agnes Lóa Heimisdóttir
Emil Logi Heimisson
Bláa liðið:
Alma Eggertsdóttir
Bjarki Már Ingvarsson
Amelía Eyfjörð Bergsteinsdóttir kom og las fyrir okkur hryllingssöguna sína Göngin sem kom út í bókinni Eitthvað illt á leiðinni er. Þetta er svakalega spennandi saga og það er ekkert verra að kunna smá frönsku...