Fjölmiðlar, bandarísk amma og Anup frá Nepal
Í þessum síðasta þætti Róta er fjallað um birtingarmyndir innflytjenda í fjölmiðlum. Við förum í fjölskylduboð hjá bandarískri ömmu sem býr til ekta New York-lasagna og heyrum sögu…
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.