Rætur

Siðir, saumó og sirkus

Við veltum fyrir okkur siðum, venjum og hjátrú fólks frá ólíkum löndum. Við förum í saumaklúbb erlendra kvenna sem í þeirra huga er svo miklu meira en saumaklúbbur. Við eldum afrískan mat með úganskri ömmu og heyrum sögu Lees Nelson, sirkusstjóra Sirkuss Íslands. Hann ætlaði sér aldrei stoppa lengi á Íslandi en svo varð hann bara óvart ástfanginn af íslenskri konu - á skemmtistaðnum Sirkus.

Frumsýnt

17. jan. 2016

Aðgengilegt til

1. jan. 2030
Rætur

Rætur

Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.

Þættir

,