Landinn 26. desember 2019
Í jólaþætti Landans heimsækjum við stórfjölskyldu sem hefur það fyrir hefð að gleðja fátæk börn með þátttöku í verkefninu Jól í skókassa. Við heimsækjum skautadrottningu í Möðrudal…
Landinn heimsækir Ástu Þórisdóttur á Hólmavík sem skilur ekki hvers vegna við flokkum sumar jurtir sem illgresi. Við kveðum rímur, föndrum jólaskraut með krökkunum í Þingeyjarskóla og hámum í okkur bjúgu á bjúgnahátíðinni í langaholti. Svo skoðum við líka einkasafnið hans Aðalsteins Þórssonar.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.