Landinn 26. desember 2019
Í jólaþætti Landans heimsækjum við stórfjölskyldu sem hefur það fyrir hefð að gleðja fátæk börn með þátttöku í verkefninu Jól í skókassa. Við heimsækjum skautadrottningu í Möðrudal…
Landinn fjallar um rannsóknir á sjófuglum við Ísland sem geta gefið vísbendingar um það hvaða áhrif loftslagsbreytingar munu hafa á ólí. Við hittum Pétur Viðarsson fótboltamann sem ákvað að gerast pylsusali. Við kíkjum á Smiðjuloftið á Akranesi, smökkum kaldreyktan fisk á Ísafirði og skellum okkur svo í leikhús hjá áhugaleikfélaginu Hugleiki.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.