Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Sævar Helgi Bragason. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla og lið Tækniskólans mætast.
Í garðinum með Gurrý sýnir Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin og fer í áhugaverðar heimsóknir. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Heimsókn í garð Péturs Reynissonar og Áslaugar Einarsdóttur í Hveragerði og sérstakar hleðslur við húsið skoðaðar. Hollráð.
Heimildamynd frá 1996 um lífskúnstnerinn og listmálarann Stefán Jónsson Stórval frá Möðrudal sem lést 30. júlí 1995.
Í myndinni er slegist í för með Stefáni á æskuslóðir hans á Austurlandi og komið víða við. Stefáni hafði verið boðið að halda málverkasýningu á menningardögum á Vopnafirði og í ferðinni málaði hann sínar síðustu myndir af eftirlætisviðfangsefni sínu, Herðubreið. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.
Danskir þættir um arkitektúr á tímum loftslagsbreytinga. Hvernig byggjum við borgir fyrir breytt loftslag með stormum og miklum rigningum? Sjálfbær arkitektúr fer vaxandi um heim allan og danskir arkitektar eru þar í fararbroddi. Lausnir við loftslagsvanda sem um leið stuðla að góðu lífi eru í þróun.
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
Tilraunakennd mynd frá 2023 eftir Magnús Leifsson sem samanstendur af þremur senum sem fjalla á einhvern hátt um dauðann. Aðalhlutverk: Arnar Freyr Frostason, Halldór Laxness Halldórsson, Helgi Sæmundur Guðmundsson og Saga Garðarsdóttir.
Bandarísk bíómynd frá 2014. Stetson Tate er 12 ára vandræðagemsi með eyra fyrir tónlist. Pabbi hans sendir hann í fínan heimavistarskóla fyrir kórdrengi þar sem hann blómstrar og stefnir brátt í fremstu röð söngvara - nema hann komi sér í alvarleg vandræði fyrst. Leikstjóri: François Girard. Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Kathy Bates, Debra Winger og Garrett Wareing.
Þriðja þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Rómantísk gamanmynd frá 2001 með Renée Zellweger, Colin Firth og Hugh Grant í aðalhlutverkum. Bridget Jones er einhleyp kona í Lundúnum sem er ekki nógu ánægð með sjálfa sig. Ástamálin ganga illa og hún er óánægð í starfi. Um áramótin strengir hún þau heit að ná tökum á lífi sínu og bæta sig á öllum sviðum. Hún heldur um það dagbók sem gengur upp og ofan. Myndin er byggð á bók eftir Helen Fielding. Leikstjóri: Sharon Maguire. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.