Sígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1992. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast við Verkmenntaskólans á Akureyri og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Verkmenntaskólans á Akureyri skipa Pétur Maack Þorsteinsson, Skafti Ingmarsson og Rúnar Sigurpálsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Jón Einar Jónsson, Júlíus Atlason og Jón Yngvi Jóhannsson.
Popppunktur frá árinu 2011. Í þáttunum takast íslenskar hljómsveitir á í æsandi spurningaleik, þar sem gáfur og viska, ásamt snerpu, atgervi og heppni ráða niðurstöðunni - já og tónlistarhæfileikar. Sextán hljómsveitir taka þátt í keppninni að þessu sinni. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Í þriðja Popppunkti sumarsins er komið að blúsnum og þungarokkinu þegar blússystkinin í Klassart mæta víkingametalhausnum í Skálmöld. Báðar hafa sveitirnar vakið á sér athygli að undanförnu, en nú kemur í ljós hvernig þær standa sig í spurningaflóðinu sem Felix og Dr. Gunni bera á borð.
Slegist er í för með áhöfnum þriggja fiskiskipa og fylgst með lífi og störfum íslenskra sjómanna við ólíkar aðstæður auk þess sem sagðar eru sögur af lífinu um borð. Myndefnið er tekið upp á árunum 2009-2012. Dagskárgerð annaðist Árni Gunnarsson.
Loðnustofninn gengur vestur með suðurströnd landsins í lok vertíðar á hryggningarstöðvar vestur af landinu. Floti uppsjávarskipa eltir torfurnar til að ná að veiða kvóta ársins áður en það verður of seint.
Slegist er í för með skipverjum á Ingunni AK-150 frá Akranesi og fylgst með æsilegu kapphlaupi við tímann í haugabrælu og við erfiðar aðstæður.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara.
Heimildarþættir um Cherrie, eina stærstu R&B-stjörnu Svía. Þrátt fyrir að vera böðuð sviðsljósinu hefur Cherrie tekist á við myrkur innra með sér eftir erfiða lífsreynslu. Nú vill hún vera öðrum innblástur með tónlist sinni og vísa fólki veginn út úr myrkrinu.
Tónlistarþáttur frá 1988 þar sem fjallað er um innlend og erlend dægurlög. Umsjón: Jón Ólafsson, Steingrímur S. Ólafsson, Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgisdóttir. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.
Fimmburarnir Allan, Allan, Allan, Allan og Allan eru alveg eins í útliti og alveg jafn miklir ærslabelgir. Þeir gera sitt besta til að vera með eins mikil læti og hægt er.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Apinn Skotti og fíllinn Fló eru bestu vinir og bralla ýmislegt skemmtilegt í skóginum ásamt vinum sínum.
Daglegt líf Hælbein fjölskyldunnar gengur sinn vanagang. Hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
Vinalegi hundurinn Sámur hvetur börn til þess að kanna umhverfi sitt og takast á við verkefni í sameiningu.
Skemmtilegir þættir um hugmyndaríku stúlkuna Kötu sem ferðast með fjólubláu kanínunni Mumma til ævintýraheimsins Mummaheims.
Íslensk lög úr áttunni. Hver eru uppáhalds áttu-lögin þín? Þættir frá 2023 sem gerðir voru í tilefni 40 ára afmælis Rásar 2.
Íþróttafréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ríkisstjórnin kynnti í dag aðgerðaráætlun til þess að vinna gegn verðbólgu og frekari hækkun vaxta. Aðgerðirnar fela meðal annars í sé að laun æðstu ráðamanna hækka um 2,5 prósent um næstu mánaðamót í stað 6 prósent. Stofnframlög til uppbygginga leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins verða tvöföldu og afkoma ríkissjóðs bætt um rúma 36 milljarða með sparnaði í rekstri ríkisins og frestun framkvæmda. Rætt við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra og Kristrúnu Frostadóttir formann Samfylkingarinnar.
Heimildarþáttaröð frá BBC í þremur hlutum þar sem fylgst er með öpum og lemúrum yfir tveggja ára tímabil.
Hver skrifar sögu okkar? Það fer eftir ýmsu, svo sem þjóðerni, kyni eða uppruna, og sama atburði má lýsa á marga mismunandi vegu. Fornleifauppgröftur, nýjar rannsóknir eða annar tíðarandi getur líka valdið því að sagnfræðin verði endurskoðuð. Emma Molin og Özz Nûjen hjálpa okkur að sjá fleiri en eitt sjónarhorn á sögunni.
Sænskir sakamálaþættir um lögfræðinginn og fyrrverandi saksóknarann Tildu Renström. Ung stúlka hverfur í grennd við flóttamannabúðir. Tilda áttar sig fljótt á því að flóttamaður frá Sómalíu sem vísa átti úr landi gæti reynst henni vel í leitinni að stúlkunni. Þegar hún biður hann um aðstoð vill hann greiða fyrir greiða. Aðalhlutverk: Malin Levanon, Nasir Dhagole og Kristofer Kamiyasu. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir heimildarþættir þar sem Bettany Hughes skoðar sögufræga áfangastaði víðsvegar um heiminn og uppgötvar faldar perlur á ferðalagi sínu.
Heimildarþáttaröð í þremur hlutum þar sem sænski loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg tekur sér árs leyfi frá skóla til að ferðast um heiminn og hitta hina ýmsu þjóðarleiðtoga. Hún kynnir sér vísindin á bak við hlýnun jarðar og skorar á þjóðarleiðtoga heimsins að bregðast við hættunni sem af henni stafar.
Beinar útsendingar frá Bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik Þórs og Víkings í 8 liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta.
Beinar útsendingar frá Bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik Breiðabliks og FH í 8 liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta.