15:55
Skaginn

Heimildarþættir um lið ÍA sem vann einstakt afrek í íslenskri knattspyrnusögu þegar það varð Íslandsmeistari karla fimm ár í röð á árunum 1992-1996. Í þáttunum fara þjálfarar, leikmenn, andstæðingar, stjórnarmenn, stuðningsfólk og fjölmiðlafólk yfir þetta tímabil.

Á 20. öld snerist líf bæjarbúa á Akranesi um knattspyrnu og árangur ÍA var hluti af sjálfsmynd þeirra. Samfélagið tók því illa þegar karlaliðið féll niður um deild árið 1990. Tekið var í taumana og fyrrverandi leikmaður ÍA, Guðjón Þórðarson, var fenginn til að koma liðinu aftur á sigurbrautina.

Er aðgengilegt til 17. nóvember 2026.
Lengd: 39 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Dagskrárliðurinn er textaður
  • Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
  • Endursýnt
,