Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Inni í Galdrahellinum er stöpull þakinn rúnaletri sem segir þeim að játa en það er sama hvað þau játa, ekkert dugar gegn draugalegum galdramönnum og gullbjöllunum þeirra.
Hópurinn tvístrast og þau velta fyrir sér hvað þau eru að gera þarna. Álfur og Hallgrímur mætast fyrir utan hellinn. Þegar Álfur stígur inn í hellinn bregst galdramátturinn honum og inngangurinn fellur saman. Þeir eru innilokaðir.
