
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.

Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Marokkó, Senegal, Egyptaland og Fílabeinsströndina.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Noreg, Kongó, Haítí og Írak en löndin eiga það sameiginlegt að hafa oftar en ekki verið hársbreidd frá því að komast á HM.
Veiðiþættir í umsjá bræðranna Gunnars og Ásmundar Helgasona. Í þáttunum fara þeir á ýmsa veiðistaði, fá aðstoð sérfræðinga og heimafólks og veiða meðal annars ísaldarrurriða á flugu, þorsk af kajak, lax á Vesturlandi, silung á fjöllum og hákarl úr fjöru. Þeir elda allt sem þeir veiða, þó við misjafnar aðstæður og með misjöfnum árangri. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Nú er ferðinni heitið upp á miðhálendið. Eftir ráðleggingar í sjoppunni halda bræðurnir til veiða í Frostastaðavatni inni á Landmannaafrétt þar sem þeir renna fyrir bleikju, en fá svo óvæntan leynigest í heimsókn. Í kaffipásunni skjótast þeir á Háafoss, einn hæsta foss landsins, til að skoða staðbundinn urriða og komast að því hvort hægt er að veiða undir svo háum fossi.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Árni Scheving var einn helsti djasslistamaður þjóðarinnar. Hann hóf ungur að starfa sem hljómlistarmaður og lék með öllum helstu hljómsveitum og tónlistarmönnum þjóðarinnar á öllum sviðum tónlistar. Flest hljóðfæri léku í höndum hans en víbrafónninn var þó höfuðhljóðfærið, einkum í djasstónlist.
Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins. Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Bubbi Morthens er gestur Sigurlaugar Margrétar í Okkar á milli. Þau ræða meðal annars sumarið, veiðar, einmanaleika og æðruleysisbænina.
Félagarnir og fyrrum Hraðfréttamennirnir Benni og Fannar réðu sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson frá Grindavík. Í þáttunum fáum við að fylgjast með strákunum í ævintýralegum 30 daga túr. Dagskrárgerð: Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Framleiðsla: Skot.
Breskir gamanþættir frá 2022 um hina óviðjafnanlegu Jessop-fjölskyldu. Daglegt líf þeirra er heldur óreiðukennt og yngsti sonurinn Sam festir það allt á filmu. Aðalhlutverk: Katherine Parkinson, Jim Howick og Freya Parks. Handritshöfundur: Tom Basden.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.
Fimmtán vinsælustu lög Bubba, að mati þjóðarinnar, skoðuð ofan í kjölinn. Hér er farið yfir lögin í 5.–1. sæti og rifjuð upp eftirminnileg augnablik í lífi Bubba.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Inni í Galdrahellinum er stöpull þakinn rúnaletri sem segir þeim að játa en það er sama hvað þau játa, ekkert dugar gegn draugalegum galdramönnum og gullbjöllunum þeirra.
Hópurinn tvístrast og þau velta fyrir sér hvað þau eru að gera þarna. Álfur og Hallgrímur mætast fyrir utan hellinn. Þegar Álfur stígur inn í hellinn bregst galdramátturinn honum og inngangurinn fellur saman. Þeir eru innilokaðir.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Sænskir þættir frá 2021. Fjölskyldur prófa alls kyns afþreyingu í von um að finna áhugamál sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Lottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Vilja breyta frumvarpi um brottfararstöð

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bandarísk fjölskyldumynd frá 2012 í leikstjórn Timothy Armstrong. Ida er klók og uppreisnargjörn stúlka sem leitar að föður sínum sem er kúrekasýningakappi. Við leitina kynnist hún hópi kúrekakvenna sem taka henni opnum örmum og kenna henni allt um kúrekalífið. Aðalhlutverk: Bailee Madison, James Cromwell og Frankie Faison.

Rómantísk gamanmynd frá 2010. Pistlahöfundurinn Lane fær tækifæri til að skrifa grein fyrir tískutímarit um hvernig eigi að finna ástina á vinnustaðnum. Í rannsóknarskyni ræður hún sig í vinnu hjá fjármálafyrirtæki með því að ljúga til um bakgrunn sinn og áætlanir. Leikstjóri: Gil Junger. Aðalhlutverk: Hilary Duff, Chris Carmack og Michael McMillian.

Bandarísk Óskarsverðlaunamynd frá 2017 í leikstjórn Martins McDonagh. Sjö mánuðum eftir að dóttir hennar var myrt fær Mildred Hayes nóg af seinagangi lögreglunnar við rannsókn málsins. Hún tekur málin í sínar hendur og birtir ögrandi skilaboð á þremur risavöxnum auglýsingaskiltum sem hrista upp í samfélaginu og neyða yfirvöld til að bregðast við. Aðalhlutverk: Frances McDormand, Woody Harrelson og Sam Rockwell. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Vilja breyta frumvarpi um brottfararstöð