Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1990. Spyrill: Steinunn Sigurðardóttir. Dómari: Sonja B. Jónsdóttir. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir. Stjórn útsendingar: Sigurður Jónasson.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Magnús Teitsson, Finnur Friðriksson og Jón Pálmi Óskarsson. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Eggert Teitsson, Gunnlaugur Ragnarsson og Stefán Broddi Guðjónsson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Steinþór Agnarsson sem greindist með heilbilunarsjúkdóminn Levibody fyrir tveimur árum. Einkennin eru svæsin, miklar ofskynjanir, Parkison, kvíði og alvarlegt þunglyndi og að auki er hann suma daga með skerta skynjun og hugsun og hegðun breytist. En Steinþór segir að lífið sé ekki búið þrátt fyrir þetta og reynir að njóta hvers dags á meðan hann getur.
Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Ingu Backman sem kennir okkur að elda kindakæfu og rísmjölsgraut. Einnig hittir hún Öldu Lóu sápugerðarkonu sem kennir okkur að gera rósavatn.

Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Orðbragð er skemmtiþáttur þar sem Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir snúa upp á íslenska tungumálið, teygja það, toga og umfaðma, knúsa og blása í það lífi. Umsjónarmenn eru Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Í þriðja þætti leitum við að málfarslögreglunni. Hver ákveður hvað er rétt og hvað er rangt mál? Og á að flengja fólk fyrir að tala vitlaust? Við ræðum einnig við þekktan málsóða. Einn vinsælasti orðaleikur sem fyrirfinnst er krossgátan, sem er 100 ára í ár. Við skoðum hvers vegna sumt fólk er hreinlega sjúkt í þær - og etjum þeim saman í keppni. 80% af meiningu okkar kemst til skila með líkamstjáningu - ekki með orðum. Við köfum ofan í tungumál líkamans. Við förum yfir tíu undarlegustu þýðingarnar á kvikmyndatitlum og Bragi fer með nokkur gleymd orð í endurvinnslu.
Íslenskir heimildarþættir um ferðalag Hringfarans Kristjáns Gíslasonar og Ásdísar Rósu konu hans. Síðla árs 2022 ferðuðust þau á mótorhjóli um töfraheima Patagóníu og Chile. Krefjandi aðstæður gerðu ferðalagið erfiðara en þau gerðu ráð fyrir en upp úr stendur mikilfengleg náttúra auk heillandi menningar og mannlífs.
Kristján og Ásdís Rósa ferðast frá syðsta byggða bóli heims í gegnum þjóðgarða Patagóníu þar sem þau glíma við mikla vinda, krefjandi aðstæður og óvæntar áskoranir. Margt ber fyrir augu og eyru svo sem stórkostlegt landslag, magnað dýralíf og fjölbreytt mannlíf.
Finnlands-sænskir þættir frá 2022. Vinkonurnar Tara og Malin verja sumri í sumarhúsi í sænsku sveitinni. Þar njóta þær náttúrunnar, elda mat og kryfja alls kyns málefni á borð við vináttu, líkamsímynd, átraskanir og kulnun.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2026. Lögfræðingar á lögmannsstofunni Matsson og Moradi takast á við stór og flókin mál þar sem mikið er í húfi. Nýliðinn Tilde stígur sín fyrstu skref inn í þennan harða og miskunnarlausa heim þar sem mörkin á milli réttlætis og góðs árangurs verða sífellt óljósari. Aðalhlutverk: Arvin Kananian, Björn Bengtsson og Kit Walker Johansson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Margverðlaunuð heimildarmynd frá 2021. Hópur fólks í Sýrlandi hættir lífi sínu til að bjarga konum sem haldið er í kynlífsánauð í búðum ISIS, hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við íslamskt ríki. Leikstjóri: Hogir Hirori. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray. Þegar hjúkrunarfræðingur og foringi alræmdra glæpasamtaka eru myrt í skotárás við sjúkrahús í Birmingham tekur Ray við rannsókn málsins. Í fyrstu lítur þetta út fyrir að vera átök glæpagengja en eftir því sem rannsókninni vindur áfram kemur í ljós að málið er mun margslungnara. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Gemma Whelan, Patrick Baladi og Jan Puleston-Davies. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.