Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi þarf að halda öllum öruggum í fótboltaleik dagsins, sérstaklega þeim sem eru algjörir klaufar!
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Kortó, Mýsla og Eik eru álveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta og þar af leiðandi fá aðgang að nýjustu vistvísindunum til geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Þáttaröð frá 2013 úr smiðju Ævars Vísindamanns. Ævar er nú kominn í nýja og enn stærri tilraunastofu í samstarfi við Sprengjugengið hjá HÍ, Marel og Vísindavefinn. Íslenskt hugvit verður haft að leiðarljósi, alvöru- og ímyndaðir vísindamenn birtast ljóslifandi fyrir augum áhorfenda og gerðar verða lífshættulegar tilraunir, þegar Ævar þorir. Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Kjartan Darri Kristjánsson, Ólafur Ásgeirsson, Björn Kristjánsson og Sandra Barilli.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Dóri DNA, Birna Rún Eiríksdóttir og Hörður Magnússon.
Berglind Festival kannar afdrif seðlaveskisins.
Hljómsveitin Supersport! lokar þættinum með laginu gráta smá.
Nýir íslenskir heimildarþættir. Viktoría Hermannsdóttir kynnist æskuslóðum viðmælenda sinna í ýmsum bæjum og hverfum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir. Framleiðsla: Pera.
Borgarfulltrúinn Sanna Magdalena Mörtudóttir ólst upp í efra Breiðholti frá tíu ára aldri og telur það besta hverfi borgarinnar. Viktoría Hermannsdóttir röltir með Sönnu um æskuslóðir hennar.
Íslensk heimildarþáttaröð í fimm þáttum um skipulag og uppbyggingu fimm bæja vítt og breitt um landið. Bæirnir Ísafjörður, Akureyri, Seyðisfjörður, Vestmannaeyjar og Hafnarfjörður eru heimsóttir og stiklað á stóru um sögu þeirra. Umsjón: Egill Helgason og Pétur Ármannsson. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Heimildarþættir frá 2022. Leikarinn Martin Clunes heldur á vit ævintýranna í leit að hinu eina sanna Kyrrahafi. Ferðalagið, sem er innblásið af Kontiki-leiðangrinum, hefst í Frönsku-Pólýnesíu og endar á Galapagoseyjum.
Þáttaröð frá 2009 þar sem Eva María Jónsdóttir ræðir við nokkra af ástsælustu leikurum þjóðarinnar. Dagskrárgerð: Haukur Hauksson.
Bryndís Pétursdóttir var uppgötvuð, þar sem hún starfaði á unglingsaldri sem sætavísa í Tjarnarbíói. Hún fékk tækifæri til að leika í nokkrum af kvikmyndum Lofts Guðmundssonar á 5. áratugnum og vakti töluverða athygli. Bryndís veiktist af þessum völdum af leiklistarbakteríunni og hefur ekki almennilega læknast síðan. Hún segir frá hvernig stelputrippi rekur sig á í hörðum heimi leiklistarinnar og ræðir um vel nýtt og ónýtt tækifæri í þessu listformi. Bryndís lék í Þjóðleikhúsinu um áratugaskeið og hafði sig lítið í frammi. Hennar „endurkoma“ var í hinni umdeildu sjónvarpsmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Vandarhöggi, en þar lék hún með skegg og gerði stormandi lukku. Í þættinum um Bryndísi má sjá brot úr fyrstu talmyndum sem gerðar voru á Íslandi, en í þeim lék Bryndís aðal-kvenhlutverkin.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Fyrsta Kilja haustvertíðarinnar er á dagskrá RÚV miðvikudagskvöldið 2. okt. kl. 20.05. Í þættinum verður rætt við rithöfundinn Salman Rushdie, handhafa bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness. Finnski höfundurinn Satu Rämö er búsett á Ísafirði, hún talar reiprennandi íslensku, og hefur slegið í gegn með spennusögunni Hildi - Satu er gestur í þættinum. Gerður Kristný segir frá nýrri ljóðabók sinni sem nefnist Jarðljós og flytur kvæði úr bókinni. Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson ræðir við okkur um bók sína Með harðfisk og hangikjöt að heiman, en þar segir frá þátttöku Íslendinga á Ólympíuleikunum í London 1948. Frá hinu nýfrjálsa ríki fór fríður flokkur en það var skortur á ýmsu enda stutt liðið frá styrjöldinni miklu. Og fræknasti íþróttamaðurinn var á valdi Bakkusar. Rýnar þáttarins fjalla um þjár bækur: Voðaverk í Vesturbænum eftir Jónínu Leósdóttur, Þessa djöfulsins karla eftir Andrev Walden og Hníf eftir Salman Rushdie.
Heimildarþáttaröð í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir. Stjórn upptöku og framleiðsla: Hrafnhildur Gunnarsdóttir.
Landslagsljósmyndun á sér langa hefð hér á landi enda af nægu að taka. Í frekar karllægum afkima ljósmyndunar hittum við helstu landslagsljósmyndara Íslands og skoðum hvaða hlutverki landslagsljósmyndun hefur gegnt í ímyndarsköpun íslensku þjóðarinnar síðan hún hófst og hver sérstaða hennar er með hliðsjón af fagurfræði, pólitík og markaðssetningu.
Ævintýralegasta spurningakeppni sögunnar. Lestrarhestar og bókaormar töfrast inn í Söguspilið og þurfa að takast á við þrautir og spurningar sem byggja á þekktum barnabókum, þjóðsögum, kvikmyndum og ljóðum.
Þá er komið að fjórða þættinum af Söguspilinu og kötturinn er mættur aftur með sínar allra bestu spurningar. Eða svo segir hann.
Fjallað er um barna- og ungmennabækur úr öllum áttum. Bókaormar KrakkaRÚV ræða við höfunda um bækurnar.
Auðunn hittir Hilmar Örn Óskarsson og spjallar við hann um bók hans, Holupotvoríur alls staðar!
Umsjón: Auðunn Sölvi Hugason
Þættir þar sem krakkar setja upp leikið verk. Það eina sem þau fá er leikmynd og málsháttur. Þau búa til söguna, ákveða hver gerir hvað og æfa vel og vandlega svo allt smelli saman fyrir sýninguna í lokin. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson. Leikstjóri: Agnar Jón Egilsson.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Á hverjum morgni, allt sumarið, hittist vaskur hópur kvenna á golfvellinum í Bíldudal og spilar einn hring. Dagskrárgerð Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Sjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty, Sheila og Gideon sinna þjónustustarfi á stóru heimili í Hampstead. Hetty vonar að erfiðleikar fortíðarinnar séu að baki en á nýja vinnustaðnum leynast ýmis leyndarmál. Aðalhlutverk: Isabel Clifton, Dasharn Anderson og Polly Allen.
Norsk fjölskyldumynd frá 2014 í leikstjórn Grethe Bøe-Waal. Systkini lenda í alls kyns ævintýrum eftir að þau eru óvart skilin eftir í snjóstormi á eyjunni Spitsbergen. Þar takast þau á við náttúruöflin og svanga ísbirni, en hvernig komast þau heim? Aðalhlutverk: Kaisa Gurine Antonsen, Ida Leonora Valestrand Eike og Leonard Valestrand Eike.
Bandarísk hraðakstursmynd frá 1978 í leikstjórn Sam Peckinpah. Vörubílstjórar mynda tæplega tveggja kílómetra langa bílalest vörubíla til stuðnings bílstjóra sem á í deilum við illkvittinn fógeta. Handritið er byggt á samnefndu lagi eftir C. W. McCall. Aðalhlutverk: Kris Kristofferson, Ali MacGraw og Ernest Borgnine. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Caroline Graham þar sem Barnaby lögreglufulltrúi glímir við morðgátur í ensku þorpi. Meðal leikenda eru Neil Dudgeon og Nick Hendrix. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.