Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Þriðja þáttaröðin um Elías, unga og áhugasama björgunarbátinn. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Breskir heimildarþættir frá 2020. Getur smokkfiskur sökkt skipi? Er kóngulóarvefur sterkari en stál? Vinirnir Tim Warwood og Adam Gendle hætta lífi sínu til að komast að athyglisverðum sannleika um hin ýmsu dýr.
Nýir þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Stjörnukokkur slær upp veislu úr hráefnum sem hefðu annars endað í ruslinu og við hittum ruslara sem dýfa sér í gáma í leit að mat. Á Hallormsstað eru eldaðar krásir úr hráefnum sem alla jafna er fúlsað við og hjá Landgræðslunni í Gunnarsholti eru gerðar tilraunir til uppgræðslu með ýmsum brögðum.
Íslensk heimildarmynd um tengsl íbúa við heimabæinn sinn, sjálfsmyndina sem er samofin firðinum og samfélagsleg áhrif sem heldur fólki heima, eða ber það á önnur mið. Austur á Vopnafirði eiga 645 manns heima. Í daglegu amstri samfélagsins vofir yfir ógnin af fólksfækkun en hver einstaklingur skiptir miklu máli til að halda voninni um að litla byggðarlagið eigi sér framtíð. Leikstjóri: Karna Sigurðardóttir.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þessum þætti fjöllum við um það sem við köllum hátíðavandann - tilraunir til að kvikmynda stórhátíðir sem Íslendingar héldu, líkt og Alþingishátíðina 1930 og Lýðveldishátíðina 1944. Það gekk stundum heldur brösulega og sumt misheppnaðist illa.
Þáttaröð þar sem Jónas Sen heimsækir átta íslenska söngvara og spjallar við þá um heima og geima. Þættirnir voru frumsýndir 2011. Stjórn upptöku: Jón Egill Bergþórsson.
Bjarni Thor Kristinsson hefur verið áberandi á fjölum Íslensku óperunnar um allnokkurt skeið. Stelur hann oftar en ekki senunni, enda hefur hann einstaka nærveru. Í þættinum er meðal annars fjallað um stöðu óperunnar í samtímanum og sagt frá skondnum mistökum á óperusviðinu.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur með fjölbreyttar áherslur. Ritstjórn og dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Kristín Sigurðardóttir, og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Tugir ef ekki hundruð erlendra starfsmanna eru lokkuð til landsins og síðan svikin um launin sem lofað var. Margir búa í hrörlegu húsnæði sem rukkuð er himinhá leiga fyrir. Verkalýðsfélög hafa áhyggjur af starfsmannaleigum en yfirvöld eru vanmátta, þrátt fyrir fyrirheit um annað.
Þorri og Þura eru álfar og heimsins bestu vinir. Einn daginn eiga þau von á Eysteini vini sínum en svo bólar ekkert á honum. Þorri og Þura leggja þá af stað í leit að vini sínum.
Þorri, Þura og Eysteinn kynnast Fjólu Þöll sem er ný flutt í hverfið. Að lokum verða þau öll góðir vinir og halda vinaveislu.
Hugrakki og uppátækjasami refurinn Pablo flyst úr sveit í borg ásamt systkinum sínum.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
„Ef þú ert bara að hugsa um þægindin þá er alveg eins gott að vera bara á bíl," segir Bjarni Vestmann, formaður H.0.G. Chapter Iceland.„Maður skynjar umhverfið miklu betur, t.d. þegar maður keyrir um sveitirnar, maður finnu lyktina, hitastigið úti og nýtur birtunnar öðruvísi. Svo er það náttúrulega bara þyturinn og svo hljóðið í hjólunum," segir Bjarni. H.O.G. Chapther Iceland eru opinber samtök eigenda Harley Davidson mótorhjóla á Íslandi. Starfsemi félagsins felst í því að menn hittast og fara saman í lengri og skemmri ferðir, innanlands og líka erlendis. Á mennignarnótt fara klúbbmeðlimir síðan niður í miðbæ Reykjavíkur og bjóða gestum og gangandi á bak, og fara með þá lítinn rúnt, gegn gjaldi. Allur ágóði rennur síðan til Umhyggju, félags langveikra barna.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson og Björgvin Kolbeinsson.
Ævintýralegir breskir þættir frá 2021 með David Tennant í aðalhlutverki. Heimshornaflakkarinn Phileas Fogg heldur af stað í ferðalag. Hann ætlar sér að fara umhverfis jörðina á 80 dögum. Þættirnir eru byggðir á samnefndri skáldsögu eftir franska rithöfundinn Jules Verne. Aðalhlutverk: David Tennant, Ibrahim Koma og Leonie Benesch.
Uppfærsla Breska þjóðleikhússins á einu frægasta leikriti Williams Shakespeare frá 2021. Sögusviðið er Ítalía í samtímanum þar sem elskendurnir ungu, Rómeó og Júlía, hætta öllu til að vera saman. Aðalhlutverk: Jessie Buckley og Josh O‘Connor. Leikstjóri: Simon Godwin.
Bresk heimildarmynd um vináttu fjögurra stórstjarna sem allar bera heiðursnafnbótina dame. Leikkonurnar Judi Dench, Eileen Atkins, Joan Plowright og Maggie Smith ræða leikferilinn og rifja upp gamla tíma.