22:20
Brot
Brot

Íslensk spennuþáttaröð frá 2019 um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík. Það reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan fær virtan lögreglumann með dularfulla fortíð, Arnar, til að snúa heim eftir áratuga fjarveru utanlands og aðstoða við rannsókn málsins. Leikstjórn: Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafsson og Þóra Hilmarsdóttir. Aðalhlutverk: Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors. Framleiðsla: Mystery og Truenorth. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára. Þættirnir eru sýndir á sama tíma á RÚV 2 með enskum texta.

Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.

Þegar í ljós kemur að síðasti starfsmaður Valhallar er enn á lífi óttast Kata og Arnar að raðmorðinginn finni hann á undan þeim. Á sama tíma kafar lögreglan dýpra ofan í skuggalega sögu unglingaheimilisins og drengjanna sem voru þar.

Er aðgengilegt til 15. ágúst 2025.
Lengd: 46 mín.
12
Ekki við hæfi yngri en 12 ára.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,