Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir. Sjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Í þessum þætti mætast lið Tækniskólans og Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Þættir frá 2011-2012 þar sem fjallað er um leiksýningar, kvikmyndir, heimildamyndir, stuttmyndir og leikna sjónvarpsþætti. Leikmyndir, lýsing, hljóð og brellur kvikmynda og leikhúsa eru skoðuð og fylgst með framleiðslu einstakra kvikmyndaverka. Rýnt er í myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti, nýjar leiksýningar fá ítarlega umfjöllun og gagnrýni og farið yfir feril einstakra listamanna.
Umsjónarmenn eru Þórhallur Gunnarsson, Sigríður Pétursdóttir, Vera Sölvadóttir og Guðmundur Oddur Magnússon. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson.
Færeyskur heimildarþáttur frá 2020 um kokkinn Poul Andrias Ziska og færeyska veitingastaðinn KOKS, sem hefur hlotið tvær Michelin-stjörnur.
Þáttaröð frá 2003-2004 þar sem Jón Ólafsson ræðir við þekkta tónlistarmenn. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Dönsk þáttaröð í fjórum hlutum um íbúðarhús víðs vegar á Grænlandi og fjölskyldurnar sem þar búa. Í hverjum þætti kynnumst við nýrri fjölskyldu og sjáum hvernig hún býr.
Þættir frá árunum 1989-1990 í umsjón Jóns Gunnars Grjetarssonar. Kynntar eru helstu gönguleiðir á þeim stöðum sem heimsóttir eru. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Teiknimyndaþættir um litlu lundasystkinin Únu og Bubba sem búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum á eyjunni.
Nokkrir kunnulegir og ókunnulegir fiskar kynna sig fyrir áhorfendum.
Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Daglega lífið hjá Hælbein fjölskyldunni heldur áfram sinn vanagang. En þegar Blæja og Bára eiga í hlut þá er enginn dagur rólegur.
Símon er hress og skemmtileg kanína sem tekst á við alls kyns áskoranir og lærir af mistökum sínum.
Íslensk tónlistarmyndbönd.
Lag: Þar sem hjartað slær
Flytjandi: Sverrir Bergmann
Höfundur lags: Halldór Gunnar Pálsson
Höfundur texta: Magnús Þór Sigmundsson
Breskir heimildarþættir frá 2020. Getur smokkfiskur sökkt skipi? Er kóngulóarvefur sterkari en stál? Vinirnir Tim Warwood og Adam Gendle hætta lífi sínu til að komast að athyglisverðum sannleika um hin ýmsu dýr.
Franskir heimildarþættir frá 2021. Fylgst er með fimm ljósmyndurum sem hafa tengst samfélögunum sem þau mynda sterkum tilfinningaböndum síðustu áratugi.
RÚV rifjar upp sögu Ólympíuleikanna, allt frá upphafinu til 2016. Við upplifum ógleymanleg augnablik með keppendum, sérfræðingum og íþróttafréttamönnum sem voru á staðnum og okkar allra besti frjálsíþróttalýsandi, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, ræðir stærstu afrekin eins og honum einum er lagið. Umsjón: Kristjana Arnarsdóttir. Dagskrárgerð: María Björk Guðmundsdóttir og Óskar Þór Nikulásson.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Breskir sakamálaþættir frá 2021. Rannsóknarlögreglumaðurinn Tom Brannick rannsakar hvarf fyrrum meðlims IRA. Hann neyðist til að horfast í augu við fortíðina þegar hann áttar sig á að málið tengist gömlu óleystu sakamáli sem tengist honum persónulega. Aðalhlutverk: James Nesbitt, Lorcan Cranitch og Charlene McKenna. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.
Heimildarmynd sem segir frá vinunum Mahmoud og Fawzi. Þeir dvelja í Za'atari flóttamannabúðunum í Jórdaníu en dreymir um að verða atvinnumenn í fótbolta, fjarri átakasvæðum Mið-Austurlanda. Þegar heimsþekkt fótboltaakademía heimsækir búðirnar ákveða þeir að láta ekki tækifærið ganga sér úr greipum. Í myndinni koma fram heimskunnir fótboltakappar á borð við Robert Lewandowski, Xavi Hernandez og Arjen Robben.
Önnur þáttaröð um norsku athafnamennina. Vinirnir fjórir eru auðugir, keyra um á flottum bílum, eiga glæsileg heimili og fallegar fjölskyldur. Þeir eiga þó sínar myrku hliðar og leita útgönguleiða úr daglegu lífi sínu meðal annars með ofbeldi, eiturlyfjum og kynlífi. Þættirnir eru byggðir á sönnum frásögnum úr norskum fjármálaheimi. Aðalhlutverk: Simon J. Berger, Agnes Kittelsen, Pål Sverre Hagen, Tobias Santelmann og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.