Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Sævar Helgi Bragason. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Lið Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautaskólans í Garðabæ mætast í úrslitum.
Þáttaröð í umsjón Guðríðar Helgadóttur garðyrkjufræðings þar sem hún sýnir áhorfendum réttu handtökin við garðyrkjustörfin. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.
Í þessum þætti kíkir Gurrý í matjurtagarðinn þar sem hún setti niður kartöflur og grænmeti fyrr í vor, fær Björgvin Örn Eggertsson skógfræðing til að hjálpa sér við að fella ösp og sýnir hvernig best er að fara að þegar baunum er sáð í pott. Hún heimsækir einnig Jón Þóri Guðmundsson garðyrkjufræðing og Katrínu Eddu Snjólaugsdóttur sem eiga fjölbreytilegan garð á Akranesi. Að lokum sýnir hún hvernig kryddjurtir geta verið fyrirtaks pottaplöntur.
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
Sumir staðir skipta okkur meira máli en aðrir. Gísli Marteinn Baldursson á stefnumót við viðmælendur á stöðum sem hafa haft afgerandi og mótandi áhrif á líf þeirra. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Gísli Marteinn Baldursson ræðir við Þorlák Kristinsson (Tolla) sem fer með áhorfendur á staðinn sem hafði mest áhrif á líf hans.
![KrakkaRÚV](/spilari/DarkGray_image.png)
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að útbúa eftirrétt fyrir börnin sín þegar það yngsta stelur hráefnunum! Eddi verður að ná því aftur svo allt húsið og börnin festist ekki í hlaupi!
RÚV rifjar upp sögu Ólympíuleikanna, allt frá upphafinu til 2016. Við upplifum ógleymanleg augnablik með keppendum, sérfræðingum og íþróttafréttamönnum sem voru á staðnum og okkar allra besti frjálsíþróttalýsandi, Sigurbjörn Árni Arngrímsson, ræðir stærstu afrekin eins og honum einum er lagið. Umsjón: Kristjana Arnarsdóttir. Dagskrárgerð: María Björk Guðmundsdóttir og Óskar Þór Nikulásson.
Danskir heimildarþættir frá 2022. Fjallað er um morðið á Freyju Egilsdóttur Mogensen sem var myrt af fyrrverandi eiginmanni sínum. Þau höfðu verið gift í 20 ár þegar brestir komu í sambandið og Freyja ákvað að slíta því. Atriði í þáttunum geta vakið óhug.
Þættirnir eru hluti af þemanu Sakamálasumar.
Íslensk þáttaröð frá 2021 sem gerist á árunum 1983-91. Vinahjón gera upp gamlan togara og fara í útgerð. Allt gengur vel þar til kvótakerfið kemur til sögunnar og setur líf hjónanna sem og allra landsmanna í uppnám. Með aðalhlutverk fara Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson, Guðjón Davíð Karlsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
Vinahjónin, ásamt Jóni Hjaltalín, grípa til örþrifaráða til að laga kvótakerfið að þörfum sínum. Á meðan heldur baráttan um eignarhaldið á fiskinum áfram í bæjarfélaginu.
Bresk spennuþáttaröð í fjórum hlutum. Kennarinn Sally Wright hefur setið í fangelsi í fimm ár fyrir morð á 16 ára dreng þegar sakfellingu hennar er snúið við og hún látin laus. Hún reynir að byggja upp líf sitt á ný á sama tíma og lögreglan leitar að hinum raunverulega sökudólgi. Aðalhluverk: Katherine Kelly, Shaun Dooley og Laura Rollins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Þáttaröðin er hluti af þemanu Sakamálasumar.