Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Svartsengislína Landsnets rofnaði í morgun þegar hraun rann undir hana í eldgosinu í Sundhnúksgígjaröðinni. Nils Gústavsson framkvæmdastjóri rekstrar og eigna hjá Landsneti er gestur Kastljóss og ræðir áhrif umbrotanna á Reykjanesskaga á orkuinnviði. Kastljós heldur síðan áfram umfjöllun um ýmis málefni í aðdraganda kosninga og nú eru það húsnæðismál - en þau hafa verið einn helsti drifkrafturinn i verðbólgunni. Farið er að draga úr uppbyggingu og rík krafa er um að stjórnvöld bregðist við því.
Hvernig hugsa helstu listamenn og hugsuðir Svíþjóðar og hvaðan sækja þau sér innblástur og hvatningu? Í þessum þáttum er rætt við sænska meistara um sköpunarferlið, ákvarðanatöku og það hvernig mistök geta leitt til nýrra sigra.
Sænskir þættir sem fjalla um ævintýri sem eiga sér stað í sumarbúðum í Svíþjóð. Þar eru foringjarnir ekki alveg eins og fólk er flest og forvitin börn lenda í fjörugum aðstæðum, sem innihalda meðal annars boga, brjálaða geitunga og bjarnargildrur!
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Elísabet Inga Sigurðardóttir, Gunnar Birgisson, Fannar Ingi Friðþjófsson og Haukur Heiðar Hauksson.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Gestir þáttarins eru Gauti Þeyr Másson, Hulda Þórisdóttir og Sandra Barilli.
„Ellý og Raggi Bjarna“ úr Borgó flytja jólalagasyrpu.
Berglind Festival sýnir lokaþáttinn af Atkvæðið er blint.
Baggalútur og Sigga Beinteins loka þættinum með laginu Hótel á aðfangadag.
Verðlaunamynd með Robert Downey Jr. í aðalhlutverki um skrautlega ævi Charlie Chaplin. Myndin rekur ævi Chaplin frá uppvaxtarárunum í Bretlandi þangað til hann verður heimsfrægur í Hollywood. En þó Chaplin hafi skapað marga af fyndnustu karakterum hvíta tjaldsins upplifði hann mikinn missi um ævina og þjáðist af stöðugri depurð. Leikstjóri: Richard Attenborough.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.