Hljóðritun frá tónleikum Sænsku útvarpshljómsveitarinnar sem fram fóru í Berwaldhallen, tónlistarhúsinu í Stokkhólmi í nóvember sl.
Á efnisskrá:
I am not a tale to be told fyrir sópran og hljómsveit eftir Golfam Khayam.
Sinfónía nr. 44 í e-moll, Sorgarsinfónían, eftir Joseph Haydn.
Porgy og Bess, eftir George Gershwin í sinfónískri útsetningu Roberts Russells Bennetts.
Einsöngvari og stjórnandi: Barbara Hannigan.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir.