Sumartónleikar

Sumardjass - Bad Plus á Cully djasshátíðinni

Þessi hátíð hefur verið haldin frá árinu 1983 í ýmsum myndum í bænum Cully við Genfarvatn - miðja vegu milli Lausanne og Montreux, sem enn er vettvangur einhverrar nafntoguðustu djasshátíðar heims.

Vi heyrum hljóðritun af tónleikum hljómsveitarinnar The Bad Plus, sem byrjaði sitt samstarf formlega árið 2000 þó meðlimirnir hefðu þá þekkst og spilað saman í rúman áratug. The Bad Plus byrjaði sem píanótríó og starfaði þannig í hálfan annan áratug, eða þangað til píanistinn Ethan Iverson sagði skilið við félgaga sína - bassaleikarann Reid Anderson og trommarann Dave King. Þá tók píanistinn Orrin Evans við og stóð vaktina í rúm tvö ár, eða þangað til Anderson og King ákváðu breyta til og segja skilið við píanótrío hugmyndina, enda segja varla hægt ráða píanista sem aukamann í tríó sem þetta. Úr varð um tíma kvartett með gítarleikaranum Ben Monder og saxófónleikaranum Chris Speed.

Það var síðan í byrjun ársins 2026 sem Andersson og King tilkynntu þeir ætluðu leysa upp The Bad Plus endanlega með tónleikaferð sem standa mun yfir meginhluta þessa árs. Það er sem sagt þessi útgáfa The Bad Plus-lokaútgáfan kannski, sem við heyrum leika á tónleikunum frá Cully hátíðinni.

Reid Andersson og Dave King sem fyrr á bassa og trommur, en það eru engir aukvisar sem stíga á svið til spila á píanó og saxófón með þeim. Craig Taborn á píanó og Chris Potter á saxófón. Tveir helstu boðberar nýrrar djasstónlistar hér á ferð.

Dagskrá:

Keith Jarrett (1945) - If The Misfits (Wear it)

Dewey Redman (1931) - Gotta get Some Sleep

Keith Jarrett (1945) - Le Mistral

Charlie Haden (1937-2014) - Silence

Dewey Redman (1931) - Mushi Mushi

Keith Jarrett (1945) - Encore A

Birt

4. ágúst 2026

Aðgengilegt til

3. sept. 2026

Sumartónleikar

Þættir

,