Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ítalska útvarpsins sem fram fóru í tónleikasal Ítalska útvarpsins í Tórínó í júní sl.
Á efnisskrá:
-Þættir úr La Vida breve eftir Manuel de Falla.
-Concierto de Aranjuez eftir Joaquin Rodrigo.
-Carmen svíta eftir Georges Bizet.
-Capriccio espagnol op. 34 eftir Nikolai Rimsky-Korsakov.
Einleikari: Pablo Sáinz-Villegas gítarleikari.
Stjórnandi: David Giménez Carreras