Þátturinn er helgaður Pétri Sigurðssyni, tónskáldi og kórstjóra, kennara, verkalýðsforingja og húsasmiði frá Geirmundarstöðum í Sæmundarhlíð, sem fæddist 14. apríl 1899 en lést 1931. Leikin er tónlist eftir Pétur, sagt frá ýmsu sem á daga hans dreif á stuttri ævi þessa merka brautryðjenda og stofnanda Bændakórsins skagfirska.