8. þáttur: Harpix Íslandsmeistarar og aðalleikarar
Lokaþáttur Aftureldingar var sannarlega hádramtískur. Það er hlaðvarp dagsins sömuleiðis, bara á annan hátt. Gestir dagsins eru annars vegar nýbakaðir Íslandsmeistarar Vals í handbolta…
Það var eitthvað kunnuglegt við medalíumálið hans Skarphéðins. Við fáum fyrrum landsliðsmanninn Sigfús Sigurðsson til að ræða málið í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik tökum við stöðuna á Hafsteini Gunnari Siguðrssyni leikstjóra og Dóra DNA handritshöfundi og mögulega getur borgað sig að doka við að leik loknum.

Íþróttafréttafólk RÚV er með sjónvarpsþættina Aftureldingu á heilanum. Rætt er við fólkið á bakvið tjöldin og líka einstaklinga sem þekkja þemu þáttanna af eigin reynslu.