7. þáttur - Grísinn sem felldi fölsunarmálið
Forvörðurinn Ólafur Ingi Jónsson skýrir hvers vegna falsanir eignaðar Svavari Guðnasyni eru rauður þráður í fölsunarmálinu. Við sögu koma svikahrappar í Kaupmannahöfn, forsetaframbjóðandi…
Verk eignað Svavari Guðnasyni seldist á uppboði í Kaupmannahöfn. Verkið hafði handbragð falsaranna úr stóra fölsunarmálinu. Kaupandinn var lögmaðurinn Knútur Bruun sem hefur beitt sér fyrir því að falsanir úr málinu verði gerðar upptækar með lögum.

Falsararnir í stóra málverkafölsunarmálinu hafa aldrei verið stöðvaðir. Falsanir með þeirra handbragði hafa skotið upp kollinum á uppboðshúsum og listasöfnum að undanförnu. Í þessum þáttum af Þetta helst rekur Ólafur Ingi Jónsson, forvörður Listasafns Íslands, slóð falsaranna. Um er að ræða nýja anga af stærsta sakamáli Íslandssögunnar og einu umfangsmesta fölsunarmáli í Evrópu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.