Konungur millistríðsjassins

Áhrif Fats Wallers og rýþmahljómsveitar hans

Hér verða leiknar upptökur frá seinna skeiði rýþmasveitar Fats Wallers, en vinsældir hans jukust ár frá ári og urðu til þess alvarlegri verk hans voru síður hljóðrituð. Nokkrar mannabreytingar urðu á hljómsveit hans þessi níu ár sem hún starfaði en kjarninn var jafnan Herman Autrey á trompet, Gene Sedric á tenórsaxófón og klarinett og Al Casey á gítar. 1937 hljóðritaði Fats með hljómsveit sinni tvö úr hópi bestu laga sinna á 12 tommu lakkplötu, en aðeins klassískir tónlistarmenn fengu jafnan hljóðrita á 12 tommurnar. Þar tók hvor hlið 4 mínútur í stað 3ja er rúmuðust á 10 tommu plötunum.

Frumflutt

9. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Konungur millistríðsjassins

Konungur millistríðsjassins

Þættir um tónlistarmanninn Fats Waller sem hefur haldið meiri vinsældum en flestir bandarískir tónlistarmenn millistríðsáranna þó hann hafi horfið af sjónarsviðinu 1943 aðeins 39 ára gamall.

Umsjón: Vernharður Linnet.

Þættir

,