Karl verður konungur

Fyrsti þáttur

Hver er Karl 3. Bretakonungur? Stiklað á stóru um lífshlaup hans, allt frá litlum prins til manns á eftirlaunaaldri, einkalífið, áhugamálin, starfið sem prinsinn af Wales. Hefði hann verið ráðinn í starf konungs ef það hefði verið auglýst? Rætt er við fólk víða og leitast við svara spurningunni: Hvað hefur mótað manninn og hver er maðurinn?

Umsjón: Anna Lilja Þórisdóttir.

Frumflutt

21. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Karl verður konungur

Karl verður konungur

Um leið og Elísabet Englandsdrottning lést í september 2022 á 97. aldursári eftir 70 ára valdatíð tók Karl sonur hennar við völdum. Hann er ríkisarfi í sögu Bretlands sem lengst hefur beðið eftir því taka við og ætti vera vel undirbúinn fyrir starfið.

Hvað hefur hann gert öll þessi ár? Hvernig voru uppvaxtarár hans og hvernig hefur lífshlaup hans verið. Hefur það undirbúið hann vel fyrir þetta hlutverk?

Karl verður krýndur 6. maí við afar hátíðlega athöfn sem byggir á fornum hefðum og venjum. Við skyggnumst bak við rauðu flauelstjöldin og skoðum hvernig konungur er krýndur og veltum fyrir okkur hversvegna yfirhöfuð verið framkvæma þessa athöfn. Þessa þriðja Bretakonungs sem ber nafnið Karl bíða ýmsar áskoranir, ekki síst í einkalífinu þar sem samskipti í nánustu fjölskyldu hans hafa verið stirð.

Hver er maðurinn sem tekur við þessu áberandi og valdamikla hlutverki? Við förum aftur í tímann og líka áfram og veltum fyrir okkur; hver er framtíð breska konungsveldisins. Til varpa ljósi á það er rætt við fólk úr ýmsum áttum.

Umsjónarmaður: Anna Lilja Þórisdóttir.

Þættir

,