Hyldýpi

Fimmti þáttur

Björgun Harry Eddom dró tugi breskra fjölmiðla til Ísafjarðar sem urðu æfir þegar þeir komust því The Sun hafði tryggt sér einkarétt sögu hans. Starfsfólk sjúkrahússins á Ísafirði upplifði umsátursástand þegar það reyndi verja Harry fyrir ágangi fjölmiðla sem beittu öllum brögðum til komast honum. Á meðan syrgðu Bolvíkingar fallna félaga af Heiðrúnu, þar á meðal ekkja eins þeirra sem eignaðist barnið þeirra daginn eftir hann drukknaði.

Frumflutt

22. apríl 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hyldýpi

Hyldýpi

Óveðrið 4.-5. febrúar 1968 er eitt versta veður í manna minnum. Í Ísafjarðardjúpi leituðu á þriðja tug togara vars en ísinging hlóðst upp og skipverjar börðu af ísinn fyrir lífi sínu. Tvö skip sukku í hyldýpið og það þriðja strandaði. Eftir sátu fjölskyldur í sárum. Fjallað er um óveðrið, þrautsegju, hetjudáð og sorg en líka um hvað hefur breyst síðan þetta örlagaríka veður dundi á.

Umsjón: Halla Ólafsdóttir og Birgir Olgeirsson.

Þættir

,