Heimskviður

Leyft öllum aldurshópum

266 - Leiðtogafundir þá og nú og furstadæmið Lichtenstein

Það eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða og margs að minnast. Af hverju var fundurinn haldinn á Íslandi? Var það fyrir tilstilli íslenskra barna sem skrifuðu Raisu Gorbachevu bréf, var það stjörnuspá eða vegna öryggissjónarmiða? Við skoðum líka í hvaða andrúmslofti fundurinn átti sér stað, bæði hér á landi og í heiminum öllum.

Svo ætlum við til Lichtenstein, lands sem við heyrum reglulega nefnt á nafn. Við beinum sjónum okkar að þessu smáríki milli Austurríkis og Sviss, furstadæminu þar sem erfðaprinsinn Alois fer með mikil völd og hefur mikil áhrif. Þau völd hafa til dæmis komið í ljós þegar umræða um aukin réttindi kvenna til þungunarrofs hefur borið á góma í Lichtenstein, nú síðast í sumar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Heimskviður

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.

Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Þættir

,