
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað innbrot í svína- og alifuglabú á Suðurlandi og Kjalarnesi. Innbrot í minkabú í Mosfellsdal er enn til rannsóknar.
Ríkisstjórnin hefur enn vel starfhæfan meirihluta á þingi þrátt fyrir vandræðagang innan Flokks fólksins. Þetta segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði. Hann segir hina stjórnarflokkana lítið geta gert annað en að rækta sambandið við þingmenn og ráðherra flokksins.
Norðmenn ætla að ráðast í mestu breytingar sem þeir hafa gert á vinnu við EES-mál frá upphafi. Markmiðið er aukin áhrif á reglugerðir og tilskipanir.
Formaður borgarráðs segir lóðirnar sem félagi múslima á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni var úthlutað vera verðmæta eign borgarbúa. Þær voru afturkallaðar vegna aðgerðarleysis. Trúfélögin fá nokkra daga í viðbót til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri.
Flugvirkjar segjast hafa setið eftir í launaþróun miðað við aðrar stéttir. Fundur hjá ríkissáttasemjara hófst í hádeginu.
Forsætisráðherra Póllands varar við því að Rússar hafi í hyggju að ráðast á bandamenn Úkraínu með drónum og eldflaugum. Forsætisráðherra Slóvakíu segir Evrópu nær því en nokkru sinni fyrr að dragast inn í stríðið.
Þingnefnd breska þingsins hyggst grafast fyrir um orsakir hins arfaslaka Breta í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva síðustu ár og áratugi.
Fimm tonn af kartöflum verða í boði á góðum kjörum hjá bónda í Borgarfirði á morgun - fyrir þau sem taka kartöflurnar upp sjálf.
Íslenska skáklandsliðið hefur unnið báðar viðureignir sínar í opnum flokki á ólympíuskákmótinu í Úsbekistan og er með fullt hús stiga eftir tvær umferðir.

Útvarpsfréttir.