Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 9. september 2026

Bið eftir þjónustu ráðgjafar- og greiningarstöðvar lengist eftir að húsnæðinu var lokað vegna myglu. Endurskoða á þjónustuna til að auka afköst og stytta biðlista.

Að tala við ung börn á blæbrigðaríku máli, lesa fyrir þau og umorða það sem þau segja er meðal þess sem foreldrar geta gert til að efla lesskilning þeirra síðar meir, segir læsisfræðingur. Ný PISA-könnun sýnir að hátt hlutfall íslenskra barna býr ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi að loknum grunnskóla.

Formaður sambands íslenskra sveitarfèlaga gagnrýnir skort á samràði við gerð fjárlaga.

Mikil viðhöfn og viðbúnaður er í Ósló í dag þar sem Haraldur Noregskonungur er jarðsunginn.

Aðalmeðferð í Höfðatorgsmálinu, þar sem þrír menn eru sakaðir um tilraun til manndráps í bílakjallara, hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vitni gáfu skýrslur fyrir dómi.

Bretar hafa tekið forystu í refsiaðgerðum gegn Ísrael segir forsætisráðherra Breta. Tekist var á um aðgerðirnar á breska þinginu í morgun.

Ný fríhöfn er opnuð á Keflavíkurflugvelli í dag. Ráðist hefur verið í viðamiklar breytingar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,