Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar
Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk eins…
Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins og til dæmis saltrokið í maí 2023 og afleiðingar þess. Að lokum er kastljósinu beint að hérlendum skógarbrunum og afleiðingum þeirra. Viðmælendur eru Halldór Sverrisson, Steinar Björgvinsson og Guðríður Helgadóttir.

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.