
Fyrst á fætur
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Það var Kristján Freyr sem hljóp í skarðið fyrir Huldu Geirsdóttur þennan morguninn.
Aðalgestur þáttarins var María Rán Guðjónsdóttir sem er bókaútgefandi, rekur útgáfu er kallast Angústúra. Við ræddum saman um heim bókaútgáfunnar á Íslandi, bókalestur, jólabókaflóðið sem fram undan er svo fátt eitt sé nefnt en ræddum einnig tónlistarútgáfu. María hefur svo glettilega einnig ratað í heim tónlistarinnar með listamanninum Benna Hemm Hemm og syngur með honum í Kórnum svokallaða og bregður sér í hlutverk þverflautuleikara þegar best lætur.
Í tónlistarvali þáttar valdi ég mér að beina örlítið sjónum að einni plötu hljómsveitar í gegnum þáttinn, það voru fleiri en eitt lag af þeirri skífu sem rötuðu undir nálina en þetta var hljómplatan Green með hljómsveitinni amerísku R.E.M frá árinu 1988. Tónlistin af þeirri plötu blandaðist ágætlega við annað en hér má sjá lagalista þáttarins þennan morguninn.
UNA TORFA - Ekkert að
TALK TALK - It's My Life
BUBBI - Ég er tilbúinn
R.E.M. - You are the everything
R.E.M. - World leader pretend
VELVET UNDERGROUND & NICO - femme fatale
EDDA HEIÐRÚN BACHMANN - Önnur sjónarmið
HAIRCUT 100 - Love Plus One
KAKTUS, JOHN GRANT - Follow
XTC - Senses Working Overtime
JÓNFRÍ, LÚPÍNA - Endalaus framtíð
BENNI HEMM HEMM, KÓRINN - Af hverju til einskis
GAMMOSÍUR - Benson
R.E.M. - Stand
R.E.M. - Pop song 89

Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.