Fyrst á fætur
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Gestur þáttarins í dag var tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sem sagði frá uppvexti sínum hér og þar um landið, sárum föðurmissi í snjóflóði á Flateyri og hvernig hann tók þá ákvörðun að fylgja köllun sinni og þjóna samfélaginu í gegnum tónlist. Vífill Eiríksson var á línunni í sveitasímanum frá Syðra-Holti í Svarfaðardal, en hann og stórfjölskyldan fluttu úr borginni og leggja nú stund á lífrænan búskap og matarhandverk og líður vel fyrir norðan.
Tónlist:
Árný Margrét - Day Old Thoughts.
Cat Stevens - Peace Train.
Ella Langley - Choosin' Texas.
Sigurður Guðmundsson - Kartöflur.
Foo Fighters - Walking After You.
Lay Low - By And By.
Haraldur Reynisson - Sveitin mín heitir Breiðholt.
Eddie Rabbitt - I Love a Rainy Night.
Kaiser Chiefs - Ruby.
Kacey Musgraves - I Believe In Ghosts.
Svavar Knútur - Ölduslóð.
Khruangbin - A Love International.