Við höfum síðustu dagana rætt fjölbreyttan undirbúning fyrir ferðahelgina sem fram undan er, verslunarmannahelgin sjálf skellur á á morgun og jafnvel mörg hver sem taka forskot á sæluna og eru farin af stað í útilegur, á útihátíðir eða viðburði hvers konar. Mikilvægi góðs undirbúnings er ótvírætt, sérstaklega að pakka skal réttu fötunum í tösku. Er þetta ullarpeysa og gúmmískór, sumarkonuklæði, Kaleo-sjal eða sjóstakkur og pollagallabuxur? Til þess að ræða við okkur um verslunarmannahelgartískuna kom Edda Gunnlaugsdóttir, fata- og textílhönnuður og jafnframt umsjónarmaður tískuumfjöllunar hjá Smartlandi Morgunblaðsins.
Forðum voru það varla aðrir en veðraðir sjómenn sem báru húðflúr á armi, akkeri á upphandlegg til dæmis eða þá tónlistarfólk sem spilaði rokktónlist, oftast með sítt hár og skreyttu sig með flottum flúrum. Fram undan heimsótti húðflúrstofuna Moonstone við Vegmúla í Reykjavík þar sem þverskurður þjóðar kemur í flúr og virðist áhugi fólks hvorki tengjast stétt né stöðu. Gunnar Ingi Jones eða Goodboy Gunnar tekur á móti viðskiptavinum sínum þar með bros á vör og við tókum hann tali.
Undanfarin ár hefur verið mikið fjallað um galla sem leynast í nýbyggingum á Íslandi. Í frétt Morgunblaðsins frá því í lok síðasta árs kom fram að um 40% húsfélaga í nýbyggðum fjölbýlishúsum hafa þurft að bera kostnað vegna galla eða slæms frágangs og nokkur fjöldi mála er enn óleystur. Íbúðauppbygging á Íslandi hefur verið mikil og íbúar og húsfélög standa frammi fyrir kostnaðarsömum úrbótum skömmu eftir afhendingu. Þetta vekur eðlilega spurningar um gæði bygginga, eftirlit og ábyrgð innan byggingargeirans. Við rákum augun í áhugaverða grein um þessi mál í gær eftir Bergþóru Góu Kvaran, sérfræðingi hjá Umhverfis- og Orkustofnun þar sem hún bendir á mikilvægi þess að kröfur sem settar eru fram í reglugerðum sé raunverulega fylgt eftir til að stuðla að betri endingu bygginga. Bergþóra kom til okkar og fór yfir þessi mál.
Sagt var frá því í fréttum í gærmorgun að tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson væri fallinn frá, 81 árs að aldri. Gunnar setti svo sannarlega mark sitt á íslenska tónlistarsögu og var einn af fjölhæfustu tónlistarmönnum sem Ísland hefur alið. Gunnar var tónskáld, gítarleikari, söngvari, upptökumaður, útgefandi, stjórnandi og ýmislegt fleira, án alls vafa eitt stærsta nafnið í sögu íslenskrar dægurtónlistar. Þau voru fjölmörg sem minntust hans í gær, samverkafólk, vinir og aðdáendur sem voru margir, ef ekki bara öll þjóðin en meðal þeirra sem skrifuðu til hans var söngkonan Helga Möller sem starfaði með honum um árabil og Páll Óskar Hjálmtýsson sem hefur lifað með tónlist Gunnars og sungið hana frá æskuárum sínum. Þau Helga og Páll Óskar ræddu við okkur um hið stóra framlag Gunnars til íslenskrar menningar.
Það var við hæfi að líta til baka í lok þáttar líkt og við höfum gert á föstudögum í sumar hér í Fram undan, við ljúkum þessari þáttaseríu sumarsins með dagskrárliðnum Fréttum vikunnar með góðum gestum og það voru kollegarnir Kolbeinn Marteinsson og Ólöf Skaftadóttir sem komu að þessu sinni. Þau starfa bæði hjá almannatengslafyrirtækinu Athygli. Kolbeinn er þar framkvæmdstjóri og eigandi en Ólöf ráðgjafi samhliða því að vera hlaðvarpsstjarna en hún heldur úti einu vinsælasta hlaðvarpi landsins Komið gott. Þau voru með puttann á púlsinum þegar kom að því helsta sem uppi stóið í vikunni sem leið.