Fram undan

Leyft öllum aldurshópum

Aldurstakmörk á samfélagsmiðlum, tungumál unga fólksins, úrslit á HM og bakarí á Húsavík á ný

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, birti í gær frumvarpsáform í samráðsgátt stjórnvalda um samfélagsmiðlabann fyrir börn fjórtán ára og yngri. Ráðherrann fylgir þannig fordæmi ríkja eins og Ástralíu og Bretlands, sem hafa þegar sett á slíkt aldurstakmark. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að með þessum hætti sé verið að bregðast við vaxandi hættu sem börnum og ungmennum stafar af ótímabærri, óheftri og áráttukenndri notkun samfélagsmiðla. Einn af þeim sem hefur lengi verið á þessari skoðun er Guðmundur Fylkisson lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að týndum börnum í fjölda ára og hefur vakið athygli á málefnum barna með fjölþættan vanda. Guðmundur kom til okkar.

Glaza, LU, moms, að mogga einhvern. Þetta eru allt dæmi um orðaforða unga fólksins í dag sem við sem eldri erum skiljum ekki alltaf. Tungumál unga fólksins einkennist af hröðum breytingum, skapandi orðanotkun, slettum og miklum áhrifum frá alþjóðlegri tækni- og tölvuleikjamenningu og er sífellt að þróast. Við ræddum um tungumál unga fólksins við Eirík Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslenskri málfræði og Söndru H. Smáradóttur aðstoðarforstöðukonu í félagsmiðstöð.

Nú er orðið ljóst hvaða þjóðir mætast í úrslitum á Heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu sem hófst fyrir um mánuði síðan þegar 48 þjóðir voru skráðar til leiks. Það eru Spánn og Argentína sem mætast í úrslitaleiknum á sunnudag og á laugardag verður keppt um bronsið þegar Frakkar og Englendingar mætast. Það eru 102 leikir að baki á þessu móti og tveir eftir. Einar Örn Jónsson íþróttafréttamaður fór með okkur yfir það sem staðið hefur upp úr á mótinu og það sem fram undan er um helgina.

Húsvíkingar hoppuðu hæð sína fyrir helgi því nú geta þeir sótt sér nýbakað brauð og bakkelsi í heimabænum á ný. Bakaríið Gilið hefur opnað dyr sínar en ekki hefur verið starfandi bakarí í bænum frá því að Heimabakarí hætti rekstri fyrir að verða tveimur árum. Á bak við bakaríið standa heimamenn, hjónin Birgitta Bjarney Svavarsdóttir og Geir Ívarsson. Birgitta var á línunni hjá okkur í upphafi þáttar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,