
Fram undan
Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Um síðustu mánaðamót voru hátt í tólf hundruð atvinnulausir í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Þetta er sú atvinnugrein þar sem atvinnuleysi mælist þriðja mest. Atvinnustig í greininni hefur verið hátt undanfarin ár en nú eru blikur á lofti. Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins kom til okkar.
Norski fótboltamaðurinn Erling Haaland er vinsælasti maður veraldar um þessar mundir. Hann hefur unnið hug og hjörtu heimsbyggðarinnar með frammistöðu sinni á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu. Vinsældir hans byggjast ekki aðeins á því hvernig hann stendur sig á vellinum heldur einnig persónuleika hans og stíl. En hvað borðar norska fótboltastjarnan? Albert Eiríksson matreiðslumaður hefur kynnt sér það og hann var á línunni hjá okkur.
Skiptar skoðanir eru á fyrirhuguðu símabanni í grunnskólum. Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnti til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í síðasta mánuði. Samkvæmt drögunum verður notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla óheimil á skólatíma. Heimili og skóli, landssamtök foreldra fagna reglugerðinni og hrósa Ingu Sæland barna- og menntamálaráðherra fyrir að stíga þetta skref af festu. Kristín Ólöf Grétarsdóttir hjá Heimili og skóla var á línunni hjá okkur.
Á næstu dögum fer fram áhugaverð kvikmyndahátíð í friðlandinu á Hornströndum sem hlýtur að verða að teljast ein afskekktasta kvikmyndahátíð heims. Hornstrandir Film Festival kallast hátíðin og nú haldin fjórða árið í röð. Bjarney Lúðvíksdóttir er ein skipuleggjenda og við heyrðum í henni á leið hennar vestur.
Við fengum framkvæmdastjóra STEFs, hana Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, til okkar í gær en hún sagði okkur frá heimsókn fulltrúa íslenska tónlistarbransans til streymisveitunnar Spotify fyrr í vor og hversu lítinn vilja væri að finna þar til að gera íslenska tónlist sýnilegri Íslendingum á streymisveitunni. Aðeins fimmtungur hlustunar Íslendinga á veitunni er á innlenda tónlist. Við héldum áfram að forvitnast um íslenska tónlistarútgáfu og fengum Jóhann Ágúst Jóhannsson plötuútgefanda og verslunarmann í Reykjavik Record Shop til okkar.

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.