Ef þú giftist
Þáttur um hjónabandið í nútímasamfélagi.
Hjónabandið og hugmyndin um það er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins og æðsta birtingarmynd fjölskyldunnar. Það byggir á einu óáþreifanlegasta og hverfulasta fyrirbæri menningarinnar, rómantískri ást. Í nútímanum hefur hjónabandið sífellt minna vægi en getur samt skipt sköpum þegar kemur að alvöru lífsins. Fjöldi fólks velur að giftast ár hvert oft með mikilli fyrirhöfn og tilkostnaði, þrátt fyrir að tölfræðin sýni að stór huti hjónabanda endi með skilnaði. En hvað er hjónabandið í dag? Er það rómantísk og einlæg sameining anda sem unnast eða skrifræðissamkomulag um barnauppeldi og eignamyndun? Er það tímanna tákn eða tímaskekkja?
Umsjón: Brynhildur Björnsdóttir.