Bréfberinn sem hvarf

Fjórði þáttur: Njósnir, mannrán, morð?

Hugað er kenningum í fjórða og síðasta þætti en það eru ýmsar slíkar uppi um hvarf bréfberans Bo Jansson. Sumar eru nokkuð trúverðugar en aðrar býsna fjarstæðukenndar. Er hann lífs eða liðinn? Fer hann huldu höfði í Kaliforníu eða er hann kannski kvikmyndaleikari í Norður-Kóreu?

Rætt er við Veru Illugadóttur í þættinum.

Frumflutt

1. júní 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bréfberinn sem hvarf

Bréfberinn sem hvarf

Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af eitthvað væri ekki eins og það ætti vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir.

Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Þættir

,