Bréfberinn sem hvarf

Annar þáttur: Hvar er bréfberinn?

Leitin af bréfberanum Bosse Jansson fer hægt af stað og ýmsar brotalamir við rannsókn málsins koma í ljós. Bosse hafði mikinn áhuga á öllu sem viðkom Albaníu og það höfðu hugsjónarík ungmenni á Íslandi líka.

Í þættinum heyrist í þeim Önnu Kristínu Kristjánsdóttur, Hjálmtý Heiðdal, Hlín Agnarsdóttur, Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur og Sumarliða Ísleifssyni.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir.

Klipping og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir

Frumflutt

18. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bréfberinn sem hvarf

Bréfberinn sem hvarf

Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af eitthvað væri ekki eins og það ætti vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir.

Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Þættir

,