Aldrei las ég Laxness

Leyft öllum aldurshópum

Salka Valka

Salka Valka kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932. Sölku skrifaði Halldór Laxness fyrst sem hugmynd að kvikmynd á meðan hann dvaldi í Bandaríkjunum þar sem hann var í viðræðum við framleiðsluöflin í Hollywood um að gera kvikmynd um þessa sterku konu á buxum. Skáldsagan verður síðan til eftir að Halldór snýr aftur heim án kvikmyndasamnings og breytast þá drættir sögunnar umtalsvert en Salka Valka segir í mjög stuttu máli uppvaxtarsögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, á Óseyri við Axlarfjörð. Hún er lausaleiksbarn sem glímir við mikið mótlæti á heljarinnar umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar.

Samlesari Sölku Völku í þessum þætti af Aldrei las ég Laxness er Bergur Ebbi, rithöfundur og fyrirlesari en inn á milli samtalsins verða einnig innlegg frá Ástu Kristínu Benediktsdóttur, bókmenntafræðingi, um hinsegin lestur á Sölku Völku sem og innlegg frá Unni Ösp Stefánsdóttur leikkonu, leikskáldi og leikstjórna, um leikgerð sem hún gerði við fyrri hluta sögunnar og vangaveltur um afdrif Sölku eftir sögulok bókarinnar.

Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Úngfrúin góða og húsið en fjallað verður um hana í Víðsjá 10. júní, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:

https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Aldrei las ég Laxness

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.

Þættir

,