Aldrei las ég Laxness

Leyft öllum aldurshópum

Undir Helgahnúk

Undir Helgahnúk kom út árið 1924. Verkið skrifaði Halldór Laxness í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið. Skáldsagan er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar, sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróður og móður, og fer í framhaldi að missa trúna. Gestir þáttar eru þau Rán Flygenring, rithöfundur og myndhöfundur, og Halldór Guðmundsson, rithöfundur.

Næsta bók sem tekin verður fyrir verður Vefarinn mikli frá Kasmír en fjallað verður um hana í Víðsjá 15. apríl, næstkomandi. Hægt er að taka þátt í umræðum um bækurnar í sérstökum facebook hópi sem má finna hér:

https://www.facebook.com/groups/1247768283945537

Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Aldrei las ég Laxness

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.

Þættir

,