12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 10. október 2026

Útvarpsfréttir.

Eldur kviknaði í farartæki í álverinu í Straumvík og reyk leggur frá álverinu.

Trump hefur samið við Pútín um kaup á dísilolíu næstu mánuði, aðeins þremur vikum eftir að hann undirritaði lög um refsiaðgerðir gegn ríkjum sem kaupa orku af Rússum. Zelenský segir Bandaríkin með þessu aðstoða Rússa í stríðinu.

Innviðaráðherra segir í skoðun milli ráðuneyta hvort nýja lögnin til Vestmannaeyja verður viðurkennd sem almannavarnalögn. Formaður bæjarráðs segist hissa á hvað það gengur hægt en er vongóður.

Bandarísk stjórnvöld ætla að taka upp hertar refsiaðgerðir gegn Alþjóða sakamáladómstólnum og vilja aðstoð bandamanna, sem reiði sig á varnir frá Bandaríkjaher, við að hemja starfsemi hans.

Hundrað tonna bor var fluttur á Engjateig í Laugardal í morgun þar sem Veitur ætla að bora fyrir heitu vatni.

Nýr varaformaður Samfylkingarinnar verður kjörinn á flokkstjórnarfundi í dag. Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður er einn í framboði.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 20 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,