Fjallað um mál sem eru ofarlega á baugi hverju sinni og góðir gestir teknir tali.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir.
Það bárust slæmar fréttir af atvinnumálum Akurnesinga í byrjun júlí þegar tilkynnt var um gjaldþrot Skagans 3X. Gjaldþrotið er ekki eina áfallið sem dunið hefur yfir atvinnulíf bæjarins. En á sama tíma berjast einnig jákvæðar fréttir frá Akranesi, Haraldur Benediktsson bæjarstjóri sagði frá málefnum bæjarins.
18. júlí er dagur íslenska fjárhundsins. Sóley Ragna Ragnarsdóttir er stoltur eigandi íslensks fjárhunds og sagði frá tegundinni, frá sögu þessa dags og dagskránni hjá hundaeigendum og hvuttum þeirra í dag.
Eldri kynslóðir hafa miklar áhyggjur af velferð ungs fólks. Jafnvel er sagt að snjallsímar séu eyðileggja líf barna og ungmenna. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, frumkvöðull og stofandi tveggja nýsköpunarfyrirtækja, var gestur Morgungluggans og ræddi málefni ungs fólks. Hún segir nauðsynlegt að hugsa hlutina upp á nýtt og að börn og ungmenni fái þá þjónustu sem þurfa á að halda.
Ingunni Ósk Árnadóttur, yfirlandvörður í Friðlandi að Fjallabaki, var á línunni í síðasta hluta þáttar. Hún sagði frá svæðinu og verkefnum landvarða þar.
Tónlist:
Enken yelelebesh - Girma Beyene
One Last Dance - Baby Rose
Ég tek hundinn - Hljómsveit Ingimars Eydal
Fjöllin hafa vakað - Egó
Rólegur kúreki - Bríet
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Söngkonan Una Torfadóttir hefur alltaf verið óhrædd við að hafa sínar eigin skoðanir. Hún segir það vera gjöf úr æsku þar sem hlustað var á hana. Hún kemur úr tónelskri fjölskyldu sem syngur gjarnan saman þegar þau hittast og viðurkennir hún að líklega finnist einhverjum það undarlegt. 19 ára gömul greindist hún með krabbamein sem hún segir hafa kennt sér dýrmæta lexíu og breytt sýn sinni á lífið.
Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Útvarpsfréttir.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Dánarfregnir.
Útvarpsfréttir.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Þættir þar sem sagt er frá ýmsum stöðum um allt land. Stöðum sem eiga sér sérstakt pláss í hjörtum viðmælenda.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Halla Ólafsdóttir segir frá Hornströndum, náttúrparadís sem er nánast í bakgarðinum frá heimili hennar á Ísafirði.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Iðunn Hauksdóttir.
Útvarpsfréttir.
Í þáttunum er fjallað um verkalýðsbaráttusöngva frá frönsku byltingunni 1789 til nútímans.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir
Hér verður fjallað um baráttusöngva á síðustu þremur áratugum 19. aldar. Þar á meðal eru Varsjársöngurinn pólski, franski söngurinn „Fille d´ouvrier“ (Verkamannsdóttir) og enski söngurinn „The red flag“ (Rauði fáninn), en allir þessir söngvar voru samdir í kringum 1880.
Útvarpsfréttir.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða um landið, heimsækir fólk og spjallar við það um starfsferilinn sitthvað fleira.
(Áður á dagskrá 2003-5)
Þórarinn Björnsson heimsækir Helga Helgason netagerðarmeistara í Hafnarfirði.
Útvarpsfréttir.
Í Tengivagninum er fjallað um það helsta sem er að gerast í menningu í sumar.
Útvarpsfréttir.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Flutt er brot úr Morgunglugga dagsins.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir og Vera Illugadóttir.
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Þegar vindurinn slapp út í heiminn (Inúítasaga frá Grænlandi)
Strákurinn sem fór til norðanvindsins (Noregur)
Og þess vegna eru sum tré sígræn (saga frá Chippewa ættbálkinum í N- Ameríku)
Leikraddir:
Bjarni Gunnar Jensson
Eva Halldóra Guðmundsdóttir
Fjölnir Ólafsson
Guðni Tómasson
Hafsteinn Vilhelmsson
Jóhannes Ólafsson
Pétur Grétarsson
Ragnar Eyþórsson
Sigríður Salka Fjölnisdóttir
Vala Bjarney Gunnarsdóttir
Handrit, lestur, klipping og hljóðskreyting: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Frá sumartónlistarhátíðum vítt og breitt um Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Skosku kammersveitarinnar á Mozarthátíðinni í Würtzburg, 26. maí sl.
Á efnisskrá eru verk eftir Felix Mendelssohn og Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikari: Alina Ibragimova fiðluleikari.
Stjórnandi: Maxim Emelyanychev.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Sagan kom fyrst út 1940 og er fyrsta verkið sem Gunnar samdi á íslensku eftir að hann fluttist heim og settist að á Skriðukalustri. Heiðaharmur gerist íslenskri fjallabyggð í lok nítjándu aldar þegar þeirri byggð er að hnigna af ýmsum ástæðum. Sögusviðið á sér fyrirmynd í heiðunum upp frá Vopnafirði þar sem voru æskuslóðir höfundar. Aðalpersónur eru Brandur á Bjargi, stórbóndi sem berst við að halda sveitinni í byggð og dóttir hans, Bergþóra sem nefnd er Bjargföst, eftirlæti fólksins í byggðinni. Hún tekur við búskap á Bjargi af honum ásamt manni sínum. Barátta þessa fólks er meginefni sögunnar.
Andrés Björnsson les. Hljóðritunin er frá árinu 1989.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón: Iðunn Hauksdóttir.
Gestir úr ólíkum kimum tónlistarlífsins mynda saman æ stærri lagaflækju. Tengingar milli laganna geta verið augljósar eða langsóttar, tónfræðilegar eða persónulegar, einfaldar eða flóknar. Yfir sumarið myndast smám saman fjölbreyttur og óvæntur spilunarlisti.
Útvarpsfréttir.
Núna hafa um 330 þátttakendur skráð sig til leiks á Sápuboltamótið á Ólafsfirði um helgina í 56 liðum. Þetta mun vera mesti fjöldi þátttakenda sem hafa tekið þátt hingað til. Þátttakendur eru hvattir til að mæta í búningum en veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn. Sápustjórinn Ásgeir Frímannsson var á línunni.
Framkvæmdir við breikkun Reykjanesbrautar eru enn yfirstandandi eins og margir hafa eflaust orðið varir við. Vegagerðin segir að framkvæmdirnar gangi vel - en það hefur verið töluvert um hraðakstur á vinnusvæðinu; margir sem virða ekki hraðamörk og hættan auðvitað mikil fyrir vinnandi fólk þar. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, ræddi þetta við okkur, og einnig vegblæðingar víðs vegar á þjóðveginum sem hafa verið til umræðu - til dæmis í tengslum við mótmæli bifhjólafólks í vikunni.
Það er töluvert um covidsmit í samfélaginu núna. Á nokkrum deildum Landspítala hefur hreinlega geisað faraldur - bæði sjúklingar og starfsmenn hafa verið að smitast og það getur valdið röskun á daglegri starfsemi sjúkrahússins. Covidveiran er orðin svipuð og aðrar öndunarfæraveirur, sem hafa líka verið til vandræða í vetur, en er ástæða til að hafa sérstakar áhyggjur af covid? Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir sagði okkur nánar frá stöðunni.
Götubitahátíðin fer fram um helgina í Hljómskálagarðinum. Þetta er stærsti matarviðburður á Íslandi að sögn viðburðarhaldara. Á hátíðinni verða um 30 söluaðilar í matarvögnum og sölubásum og keppnin um Besta götubita Íslands 2024 fer einnig fram samhliða en sigurvegari þeirrar keppni tekur þátt í European Street Food Awards seinna á árinu. Róbert Aron Magnússon, sem sér um hátíðina, og Silli kokkur sem átti besta borgarann á Europe streetfood awards fyrir tveimur árum komu til okkar.
Lagalisti:
Bubbi Morthens - Háflóð
Fleetwood Mac - Sara
Jónfrí og Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel
Mugison - Stóra stóra ást
The Stone Roses - Fools Gold
Baggalútur - Allir eru að fara í kántrí
Daði Freyr - Thank You
The La's - There She Goes
Plan B - She Said
Level 42 - Lessons In Love
Pet Shop Boys - Loneliness
Sólborg Guðbrandsdóttir fylgir hlustendum Rásar 2 til hádegis alla virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hljóðvegur 1 er á síðdegisvaktinni í sumar.
Umsjón: Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson, Kristján Freyr Halldórsson og Valdís Eiríksdóttir.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Útvarpsfréttir.
Í þessum þáttum er skoðuð saga íslensku útihátíðarinnar sem var hér allsráðandi í sumarstemningunni á ofanverðri síðustu öld. Farið verður í ferðalag aftur í tímann með viðkomu í Atlavík, Húnaveri, Eldborg, Herjólfsdal og víðar. Fjöldi góðra gesta koma í þáttinn og segja sögur af liðnum útihátíðum sem ýmist gengu vel eða ekki eins vel.
Umsjón og dagskrárgerð: Áskell Heiðar Ásgeirsson.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Verkefnið var unnið í samvinnu við Uppbyggingarsjóð Norðurlands vestra.
Í öðrum þætti tökum við fyrir blómatíma íslensku útihátíðanna sem haldnar voru í fögrum skógarrjóðrum fjarri þéttbýlinu um land allt um Verslunarmannahelgarnar á níunda áratug síðustu aldar. Stuðmenn og Ringó í Atlavík, Bindindismót í Galtalæk, risahátíðir í Húnaveri og stöðugt fjör á Þjóðhátíð.
Viðmælendur í þættinum eru Erla Ragnarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Bjarni Ólafur Guðmundsson, Magnús Kjartansson, Sigríður Beinteinsdóttir og Felix Bergsson.
Tónlistin í þættinum:
Ó Reykjavík - Sjálfsfróun
Fjöllin hafa vakað - EGO
Fornaldarhugmyndir - Lóla
Pamela - Dúkkulísur
Steini með Skriðjöklum
Elísa - Súellen
Sósa og salat - Stuðmenn
Þar sem hjartað slær: Fjallabræður
Lífið er yndislegt - Hreimur og fleiri
Blindsker - Bubbi og MX 21
Try for your best friend - KIKK
Tunglskinsdansinn - Stuðkompaníið
Apaspil - Nýdönsk
Birthday - Sykurmolarnir
Vertu þú sjálfur - SS Sól
Sódóma - Sálin hans Jóns míns
Umsjón og dagskrárgerð: Áskell Heiðar Ásgeirsson.
Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.