Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Bogi Ágústsson fjallaði um bresk málefni í Heimsglugganum. Rishi Sunak forsætisráðherra boðaði í gær til sumarkosninga; sannfærður um að geta nokkuð snarlega snúið heldur döpru gengi Íhaldsflokksins við. Við ræddum líka um nýjustu vendingar í póstskandalnum svokallaða.
Eftir Morgunfréttir veltum við fyrir okkur þróun fylgis frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Þóra Ásgeirsdóttir hjá Maskínu var hjá okkur. Við veltum fyrir okkur ólíkri aðferðafræði við að kanna hug landsmanna, gildi og áreiðanleika og viðbrögðum þeirra sem spurt er um.
Í síðasta hluta þáttarins ræddum við svo um byggðaþróun í landinu. Hópur fólks frá nokkrum löndum hefur verið á ferð um landið undanfarnar vikur að kynna sér fyrirbærið snjallfækkun - að gera gott úr fækkun fólks á dreifbýlum svæðum. Matthias Kokorcsh, fagstjóri hjá Háskólasetri Vestfjarða, hefur haldið utan um verkefnið hér á landi. Hann er staddur með hópinn á Akureyri í dag.
Tónlist:
Veitan, Vilhjálmur Guðjónsson - Birtuskil.
Einar Scheving - Hvert örstutt spor.
Stewart, Rod - Baby Jane.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrir nokkrum árum fór Brynhildur Pétursdóttir að finna fyrir einkennum á mjaðmasvæði sem voru sakleysisleg í fyrstu en fóru versnandi og tveimur árum síðar var hún orðin svo slæm að hún þurfti að nota hækjur til að geta gengið. Eftir að hafa hitt ótal sjúkraþjálfara, lækna, osteopata, kírópraktora og nuddara í leit að svari, neyddist hún að leggjast sjálf í rannsóknir og seint og um síðir bárust böndin að spjaldliðum, sem því miður virðist vera lítil þekking á. Brynhildur hefur deilt sögu sinni ítarlega á síðunni www.konaikerfi.com og hún sagði okkur sína sögu í þættinum í dag.
Nýlega rákum við augun í þjónustu sem kallast Húðvaktin. Þau sem standa á bak við vaktina eru systkinin Jenna Huld, húð- og kynsjúkdómalæknir og Bjarni Eysteinsbörn framkvæmdastjóri. Þau segja mikilvægt að geta sinnt læknisþjónustu í gegnum netið og með því bætt þjónustu við landsbyggðina og hraðað ferlinu ef mikið er í húfi. Jenna Huld hefur einnig starfaði í Svíþjóð en Svíar standa framarlega í þróun fjarlækninga og er það fyrirmyndin að Húðvaktinni. Jenna og Bjarni sögðu okkur meira frá þessu í þættinum.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Nú var röðin komin að Ingibjörgu Smith, sem lést nýlega, en hún var ein af okkar fyrstu dægurlagasöngkonum og söng nokkur gríðarlega vinsæl lög, til dæmis Við gengum tvö og Nú liggur vel á mér, sem við heyrðu í þættinum. Jónatan sagði okkur meira frá þessari merku tónlistarkonu í þættinum.
Tónlist í þættinum í dag:
Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
Heitt toddý / Ellen Kristjánsdótir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)
Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Valdimar Hólm Hallstað og Friðrik Jónsson)
Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G. Þórarinsson og Númi Þorbergsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Nemandi við Oslóarháskóla, sem stakk íslenskan kennara í fyrrahaust, hefur verið ákærður fyrir morðtilraun.
Minnst sex eru látin eftir eldflaugaárás Rússa á úkraínsku borgina Kharkiv í morgun. Vaxandi þungi er í sókn Rússa í norðausturhluta Úkraínu, þar sem um fjórtán þúsund manns hafa flúið heimkynni sín. Bandaríkjamenn íhuga að aflétta banni við að vopn frá þeim séu notuð gegn skotmörkum í Rússlandi.
Mikil eftirspurn er eftir húsnæði, bæði til kaups og leigu, fleiri íbúðir seljast á yfirverði og leiga hækkar. Innkoma Grindvíkinga á markaðinn hefur áhrif segir hagfræðingur.
Lögreglan í Hafnarfirði leitar enn manns sem réðst á tólf ára stúlku í við Víðistaðaskóla í gær og biðlar til fólks að láta vita af grunsamlegum mannaferðum.
Landris heldur áfram og skjálftavirkni sömuleiðis á Reykjanesskaga. Ekkert bendir sérstaklega til þess að gos sé í vændum þrátt fyrir að 17 milljón rúmmetrar af kviku hafi safnast fyrir í kvikugeyminum undir Svartsengi.
Það er að duga eða drepast fyrir forsætisráðherra Bretlands í komandi kosningum. Niðurstöðurnar gætu ráðið úrslitum um pólitíska framtíð hans. Snörp kosningabarátta hófst í dag með hvelli.
ISAVIA ætlar að rukka bíleigendur sem leggja lengur en í fimm klukkustundir við flugvellina í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum og hefst gjaldtakan á næstu dögum. Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi segist frekar verða settur í járn en að borga gjaldið sem auki enn frekar ferðakostnað þeirra sem þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Lengi hefur verið ljóst að staða afreksíþróttafólks hér á landi er erfið sem keppa á efsta stigi, fá vissulega styrki en þeir eru lágir og íþróttamenn þurfa gjarnan að treysta á að mamma eða pabbi geti hlaupið undir bagga.
Anton Sveinn McKee segir mömmu sína hafa í gegnum árin verið sinn helsta stuðningsmann, en að það sé ekki eðlileg staða að þurfa að reiða sig á stuðning ættingja til að geta verið í fremstu röð. Hann segist þakklátur fyrir styrki og stuðning sem hann hefur fengið, meðal annars frá ÍSÍ, en að styrkjakerfið þurfi að bæta ef íslenskir afreksíþróttamenn eigi að geta keppt við þá bestu í heimi.
Afreksíþróttafólk lýkur sínum ferli án þess að eiga nokkur vinnumarkaðstengd réttindi, enda er stuðningur mest í formi styrkja en ekki launa. Anton, líkt og fleira afreksfólk, á engin lífeyrisréttindi og hann er heldur ekki gjaldgengur í íslensku heilbrigðiskerfi, heldur þarf að greiða fullt verð hér á landi ef hann veikist eða meiðist þar sem hann hefur æft í Bandaríkjunum undanfarin ár.
Eyrún Magúsdóttir fjallar um nýbirta skýrslu um breytingar á umgjörð afreksíþrótta hér á landi og aukinn stuðning og ræðir við Anton Svein McKee um hans sýn á þessi mál.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Hvernig birtist fatlað fólk í bíómyndum og sjónvarpsþáttaröðum - sem venjulegt fólk eða jafnvel furðuverk, hetjur, illmenni? Hvaða áhrif hafa þessar birtingarmyndir á fatlað fólk, sjálfsmynd þess og viðhorf samfélagsins? Þetta var umfjöllunarefnið á viðburði sem ÖBí réttindasamtök og Borgarbókasafnið stóðu fyrir í gær - þar var opinn hljóðnemi og fólk deildi sinni sýn. Við ræðum við Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóra hjá Öbí.
Við stingum okkur á bólakaf í undirdjúp líffræðinnar með Arnari Pálssyni, erfðafræðingi hjá Háskóla Íslands. Hann ætlar að tala við okkur um vespur sem framleiða vírusa til að vernda afkvæmi sín.
Svo heyrum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Að þessu sinni ætlar að hann að lesa okkur pistilinn í tilefni af alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni, sem var í gær.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verða fluttar tónsmíðar sem tengjast bláa litnum, en þar má nefna „Rhapsody in Blue“ eftir George Gershwin, valsinn „Dóná svo blá“ eftir Johann Strauss og „L'aspiration vers l'azur“ (Þrá eftir bláma) eftir Zigmund Stojowski. Einnig verða flutt sönglög eftir Robert Franz, Johannes Brahms, Skúla Halldórsson og fleiri höfunda. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
Útvarpsfréttir.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Sigmar Ó. Maríusson gullsmið í Kópavogi. Talað um ætt og uppruna, Þistilfjörð, Langanes, Hvammsundrin svokölluðu á heimili afa hans og ömmu, örlagaríkt slys, Stórval (Stefán Jónsson) o.fl.
Foreldrar hans voru Maríus Jósafatsson og Sigrún Aðalsteinsdóttir. Afi hans og amma í Hvammi voru Aðalsteinn Jónasson (úr Bárðardal) og Jóhanna Sigfúsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Naglasúpan (flökkusaga frá Evrópu)
Hvernig tunglið varð til (Indland)
Hvernig tónlistin barst til jarðarinnar (Mexíkó)
Leikraddir:
Arna Rún Gústafsdóttir
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Hekla Egilsdóttir
Jóhannes Ólafsson
Karl Pálsson
Mikael Emil Kaaber
Ragnar Eyþórsson
Sigyn Blöndal
Sturla Holm Skúlason
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands
sem fram fóru í Eldborg, Hörpu, 5. apríl s.l.
Á efnisskrá:
*Metamorphosen, tónaljóð eftir Richard Strauss.
*La voix humaine, Mannsröddin, óperueinleikur eftir
Francis Poulenc.
Hljómsveitarstjóri og einsöngvari: Barbara Hannigan.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Hvernig birtist fatlað fólk í bíómyndum og sjónvarpsþáttaröðum - sem venjulegt fólk eða jafnvel furðuverk, hetjur, illmenni? Hvaða áhrif hafa þessar birtingarmyndir á fatlað fólk, sjálfsmynd þess og viðhorf samfélagsins? Þetta var umfjöllunarefnið á viðburði sem ÖBí réttindasamtök og Borgarbókasafnið stóðu fyrir í gær - þar var opinn hljóðnemi og fólk deildi sinni sýn. Við ræðum við Kjartan Þór Ingason, verkefnastjóra hjá Öbí.
Við stingum okkur á bólakaf í undirdjúp líffræðinnar með Arnari Pálssyni, erfðafræðingi hjá Háskóla Íslands. Hann ætlar að tala við okkur um vespur sem framleiða vírusa til að vernda afkvæmi sín.
Svo heyrum við pistil frá Stefáni Gíslasyni umhverfisstjórnunarfræðingi. Að þessu sinni ætlar að hann að lesa okkur pistilinn í tilefni af alþjóðlegum degi líffræðilegrar fjölbreytni, sem var í gær.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fyrir nokkrum árum fór Brynhildur Pétursdóttir að finna fyrir einkennum á mjaðmasvæði sem voru sakleysisleg í fyrstu en fóru versnandi og tveimur árum síðar var hún orðin svo slæm að hún þurfti að nota hækjur til að geta gengið. Eftir að hafa hitt ótal sjúkraþjálfara, lækna, osteopata, kírópraktora og nuddara í leit að svari, neyddist hún að leggjast sjálf í rannsóknir og seint og um síðir bárust böndin að spjaldliðum, sem því miður virðist vera lítil þekking á. Brynhildur hefur deilt sögu sinni ítarlega á síðunni www.konaikerfi.com og hún sagði okkur sína sögu í þættinum í dag.
Nýlega rákum við augun í þjónustu sem kallast Húðvaktin. Þau sem standa á bak við vaktina eru systkinin Jenna Huld, húð- og kynsjúkdómalæknir og Bjarni Eysteinsbörn framkvæmdastjóri. Þau segja mikilvægt að geta sinnt læknisþjónustu í gegnum netið og með því bætt þjónustu við landsbyggðina og hraðað ferlinu ef mikið er í húfi. Jenna Huld hefur einnig starfaði í Svíþjóð en Svíar standa framarlega í þróun fjarlækninga og er það fyrirmyndin að Húðvaktinni. Jenna og Bjarni sögðu okkur meira frá þessu í þættinum.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Nú var röðin komin að Ingibjörgu Smith, sem lést nýlega, en hún var ein af okkar fyrstu dægurlagasöngkonum og söng nokkur gríðarlega vinsæl lög, til dæmis Við gengum tvö og Nú liggur vel á mér, sem við heyrðu í þættinum. Jónatan sagði okkur meira frá þessari merku tónlistarkonu í þættinum.
Tónlist í þættinum í dag:
Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
Heitt toddý / Ellen Kristjánsdótir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)
Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Valdimar Hólm Hallstað og Friðrik Jónsson)
Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G. Þórarinsson og Númi Þorbergsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Í janúar veitti Rannís Listaháskóla Íslands viðamikinn rannsóknarstyrk til að rannsaka verkefni MetmorPhonics, listræna stjórnun og áhrif á bæði þátttakendur í endurhæfingu sem og á nemendur í háskólanámi. Verkefninu er stýrt af Listaháskóla Íslands og fyrsti viðburður rannsóknarverkefnisins fer fram á Listahátíð í Reykjavík, þar sem fagaðilum úr heilbrigðis og listageiranum verður boðið að taka þátt í skapandi ferli Kordu Samfóníu með meðlimum hljómsveitarinnar fyrir framan áhorfendur. Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths, meðrannsakandi Listaháskóli Íslands, stofnandi og listrænn stjórnandi MetamorPhonics og Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir, sem kynntist verkefninu í gegnum endurhæfingu komu til okkar til að segja okkur betur frá verkefninu.
Kynjaþing verður haldið í sjötta sinn um helgina þar sem hin fjölbreyttustu málefni tengd jafnrétti verða tekin fyrir. (Aktívistar frá Palestínu ræða um stöðu kvenna á hernumdum svæðum, listafólk um baráttuna gegn ofbeldi, þá verður fjallað um stöðu mæðra fatlaðra barna, reynsluheim unglinga og margt fleira). Tatjana Latinović formaður Kvenréttindafélags Íslands kom og sagði okkur frá því.
Ólafur Þ. Harðarsson, stjórnmálafræðingur og prófessor emeritus við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, kom til að ræða breska pólitík en Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, boðaði óvænt í gær til kosninga þar í landi þann 4. júlí.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir forstjóri Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins leit við hjá okkur. Við ræddum stöðuna þegar að kemur að yfirbókuðum heimilislæknum og hvort hægt væri að nýta tíma þeirra betur.
Saksóknari við Alþjóða sakamáladómstólinn fór fyrr í vikunni fram á að gefin yrði út handtökuskipun á hendur Benjamin Netanjahú og leiðtoga Hamas samtakanna á Gasa. Í gær kvaðst svo Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viljugur til að vinna með bandaríska þinginu að innleiðingu refsiaðgerða gegn embættismönnum Alþjóðasakamáladómstólsins fyrir vikið. Hvers konar hringavitleysa er þetta? Þórdís Ingadóttir prófessor við lagadeild HR kom að ræða málið.
Á laugardaginn fer fram dansmaraþon til styrktar Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra í Listasafni Íslands. En dansmaraþon er góðgerðarviðburður þar sem fólk með mismunandi líkamlega hreyfigetu og upplifanir hittist á dansgólfinu og dansar saman fyrir jöfnum tækifærum. Kynnir verður Bjartey Elín Hauksdóttir og hún kom til að segja okkur meira frá þessum viðburði.
Lagalisti:
Hjálmar - Það sýnir sig
Nemo - The Code
Sigrún Stella - Baby Blue
Level 42 - Lessons In Love
Noisettes - Never Forget You
Kvikindi - Gæti einhver?
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Hildur Kristín Stefánsdóttir heimsótti Hjartagosa með nýtt lag, hún tók einnig gítarinn sinn með og spilaði sitt uppáhalds Maus lag í beinni. Hljómsveitin Skárra en ekkert kom einnig í heimsókn og spilaði rosalega polka syrpu með íslenskum dægurlögum!
Lagalisti þáttarins:
KK - Þetta lag er um þig.
The Wannadies - You and me song.
FRIÐRIK DÓR - Hringd'í mig.
STEREOPHONICS - Have A Nice Day.
Ngonda, Jalen - Illusions.
THE VERVE - Bitter Sweet Symphony.
Emilíana Torrini - Miss flower.
Nemo - The Code.
HALL & OATES - I Can't Go For That (No Can Do) (80).
Páll Óskar Hjálmtýsson - Elskar þú mig ennþá.
EARTH WIND AND FIRE - Let's Groove.
Kiriyama Family - Disaster.
Hildur - Alltaf eitthvað.
ROBYN - Dancing On My Own.
BJÖRG PÉ - Timabært.
BRÍET & ÁSGEIR - Venus.
Eilish, Billie - Lunch.
CHARLES BRADLEY - The World (Is Going Up In Flames).
GDRN - Háspenna.
Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
VIOLENT FEMMES - Blister in the sun.
TOPLOADER - Dancing In The Moonlight.
ISAAC HAYES - Shaft.
PIXIES - Monkey Gone To Heaven.
AMY WINEHOUSE - Our Day Will Come.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Söngkona - Hetjan.
Lipa, Dua - Training Season.
Hráefni - Sólin.
Lada Sport - Næturbrölt.
Teddy Swims - The Door.
Faith No More - Evidence
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Nemandi við Oslóarháskóla, sem stakk íslenskan kennara í fyrrahaust, hefur verið ákærður fyrir morðtilraun.
Minnst sex eru látin eftir eldflaugaárás Rússa á úkraínsku borgina Kharkiv í morgun. Vaxandi þungi er í sókn Rússa í norðausturhluta Úkraínu, þar sem um fjórtán þúsund manns hafa flúið heimkynni sín. Bandaríkjamenn íhuga að aflétta banni við að vopn frá þeim séu notuð gegn skotmörkum í Rússlandi.
Mikil eftirspurn er eftir húsnæði, bæði til kaups og leigu, fleiri íbúðir seljast á yfirverði og leiga hækkar. Innkoma Grindvíkinga á markaðinn hefur áhrif segir hagfræðingur.
Lögreglan í Hafnarfirði leitar enn manns sem réðst á tólf ára stúlku í við Víðistaðaskóla í gær og biðlar til fólks að láta vita af grunsamlegum mannaferðum.
Landris heldur áfram og skjálftavirkni sömuleiðis á Reykjanesskaga. Ekkert bendir sérstaklega til þess að gos sé í vændum þrátt fyrir að 17 milljón rúmmetrar af kviku hafi safnast fyrir í kvikugeyminum undir Svartsengi.
Það er að duga eða drepast fyrir forsætisráðherra Bretlands í komandi kosningum. Niðurstöðurnar gætu ráðið úrslitum um pólitíska framtíð hans. Snörp kosningabarátta hófst í dag með hvelli.
ISAVIA ætlar að rukka bíleigendur sem leggja lengur en í fimm klukkustundir við flugvellina í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum og hefst gjaldtakan á næstu dögum. Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi segist frekar verða settur í járn en að borga gjaldið sem auki enn frekar ferðakostnað þeirra sem þurfa að sækja þjónustu til Reykjavíkur.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Útvarpsfréttir.
Í þessum þáttum mun Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari fjalla um gítarinn frá öllum mögulegum sjónarhornum, kynna hlustendur fyrir áhugaverðum gítarleikurum og spila skemmtilega gítarmúsík.
Í þessum þætti fjallaði Þráinn m.a. um fingrafimar alþýðuhetjur, skúrka og varmenni, kúreka og gítarleikara.
Lagalisti:
Tríó Bjössa Thor - Tómthúsmaður.
Chet Atkins - Windy and warm.
Gunnar Þórðarson - Funky lady.
Þeyr - Rúdolf.
Li-sa-X - Little wings.
Purrkur Pillnikk - Gleði.
Jan Cyrka og Guthrie Govan - Stomp and roll.
The Hellecasters - Inspector Gadget.
Merle Travis - Cannonball rag.
Marcel Dadi - Swingy boogie.
Duane Eddy - Rebel Rouser.
Marty Robbins - Saddle tramp.
Elles Bailey - Medicine man.
Peggy Lee - Johnny guitar.
Nico Play - La ciruela.
Michael Cera - Clay pigeons.
Brent Mason - First rule of thumb.
Lari Basilio - Alive and living.
Mark Knopfler - Song for Sonny Liston.
Ace Frehley - 10,000 Volts.
Steve Ray Vaughan - Scuttle buttin'.
HAM - Partýbær.